Notaðu bestu venjurnar sem tilgreindar eru að neðan til að viðhalda tilvísunarskránum þínum á góðan hátt:
Sendu raunverulegar og aðskildar tilvísunarskrár
Þú þarft að hafa einkarétt í einu eða fleiri landsvæðum á tilvísunarskránum sem þú sendir. Þessar kröfur gilda bæði fyrir hljóð- og myndefni í tilvísun þinni. Til dæmis ef hljóð- og myndræn tilvísun inniheldur hljóð frá þriðja aðila án leyfist ætti að fjarlægja það efni fyrir afhendingu. Ef tilvísun er auðkennd sem mögulega ógild og hætta er á að hún valdi ógildum tilköllum færðu tilkynningu í efnisstjórnun Studio. Sjáðu hvernig þú getur staðfest mögulega ógildar tilvísanir.
Hafðu í huga að eftirfarandi efnistegundir eru ekki gjaldgengar í samsvörun við Content ID:
- Innfellt myndefni frá þriðja aðila
- PD-efni
- Efni sem er ekki með einkaleyfi
- Nægilega ógreinilegt eða hljóðlíkt efni (eins og karaókíupptökur, endurhljóðblandanir eða ákveðnar endurblandanir)
- Óhóflega almennt efni
Nánar um efni sem er gjaldgengt í Content ID.
Láttu heil og gild lýsigögn eignar fylgja með
Þegar YouTube upphleðsluaðili fær Content ID tilkall þarf viðkomandi nægilegar upplýsingar um hvaða efni verið er að gera tilkall til og hver efniseigandinn er. Vegna þessa þurfa tilvísanir að hafa heil og gild lýsigögn.
- Allar eignir þurfa að vera með upplýsandi heiti (ekki „Lag 4“ eða innra raðnúmer, til dæmis).
- Uppteknar tónlistareignir þurfa líka að tilgreina upplýsingar um flytjanda og útgefanda.
Útilokaðu hluta með efni frá þriðja aðila
Þú þarft að hafa einkarétt á tilvísununum sem þú kveikir á samsvörun við Content ID fyrir.
Ef tilvísunin inniheldur efni frá þriðja aðila, til dæmis myndefni í almenningseign, ættirðu að útiloka þá hluta frá samsvörun við Content ID. Önnur dæmi um efni frá þriðja aðila gætu verið stuttir myndbútar sem notaðir eru samkvæmt reglum um sanngjarna notkun, auglýsingahlé eða hljóðlykkjur sem ekki heyra undir einkarétt.
Þú getur sent útilokanir á tilvísunum með því að nota annaðhvort CSV-sniðmát eða DDEX-straum.
Settu upp sérsniðnar samsvörunarreglur
Samsvörunarreglur tilgreina til hvaða aðgerða Content ID ætti að grípa varðandi vídeó sem gert hefur verið tilkall til. Þú getur sett upp sérsniðnar samsvörunarreglur sem láta Content ID vita að kerfið eigi að gera tilkall til vídeóa sjálfkrafa byggt á:
- Samsvörunarmagni í notandavídeói: Lengd eða hlutfall vídeósins sem hlaðið var upp sem samsvarar tilvísunarskránni.
- Samsvörunarmagni í tilvísun: Lengd eða hlutfall tilvísunarskrárinnar sem samsvarar vídeóinu sem hlaðið var upp.
- Samsvörunaregund: Tegund efnis sem samsvarar tilvísunarskránni: hljóð eingöngu, vídeó eingöngu eða bæði.
Þú getur líka valið að senda vídeó sem gert hefur verið tilkall til í handvirka yfirferð til að þú getir unnið úr mögulegum samsvörunum sem óvissa er um á handvirkan hátt. Ef þú ferð í gegnum ferlið getur það líka hjálpað þér að auðkenna mögulega ógildar tilvísanir. Nánar um hvernig þú býrð til reglur.
Notaðu skrár í fullri lengd
Mælt er með því að þú notir skrár í fullri lengd, frekar en búta, sem tilvísunarskrár. Tilvísanir í fullri lengd leiða til hærra tekjuöflunarhlutfalls og skilvirkari samsvörunar við Content ID.
Ef tilvísunin í fullri lengd inniheldur efni frá þriðja aðila, til dæmis myndefni í almenningseign, ættirðu að útiloka þá hluta frá samsvörun við Content ID.