Nýjustu uppfærslur
- Meiri sveigjanleiki fyrir miðjuauglýsingar í beinstreymum:
- Láttu YouTube setja inn miðjuauglýsingar í eðlilegum auglýsingahléum en veldu tíðni auglýsinga þar sem þú hefur þrjá valmöguleika.
- Veldu hvernig miðjuauglýsingar birtast með því að stilla tímann á milli auglýsinga eða setja inn auglýsingahlé handvirkt.
- Nýr eiginleiki, „Seinka auglýsingum“, gerir þér kleift að seinka birtingu miðjuauglýsinga á mikilvægum augnablikum í beinstreymi.
- Þú getur nú valið sjálfgefnar stillingar fyrir miðjuauglýsingar fyrir rás fyrir beinstreymin þín í staðinn fyrir að afrita stillingar frá fyrri streymum.
- Skoðaðu tekjur þínar af auglýsingum í beinstreymum í YouTube-greiningu.
- Nú er líka hægt að setja inn auglýsingar með Stream Deck frá Elgato með því að sækja YouTube-viðbótina.
Þú getur aflað tekna í beinstreymi með því að:
Sumar rásir gætu líka haft aðgang að rásaraðildum fyrir áhorfendur sína.Auglýsingar í beinstreymi
Ef verið er að afla tekna á rásinni og beinstreymið þitt er gjaldgengt, mun YouTube virkja auglýsingar til að birtast í efninu þínu. Ekki er öruggt að auglýsingar verði birtar og sumir áhorfendur sjá hugsanlega ekki auglýsingar. Beinstreymi getur verið gjaldgengt fyrir:
- Upphafsauglýsingar áður en beinstreymi hefst. Þessar auglýsingar eru sýnilegar í farsímum og tölvum. Sjálfkrafa er kveikt á upphafsauglýsingum fyrir beinstreymi.
- Miðjuauglýsingar meðan á beinstreymi stendur. Hægt er að setja þessar auglýsingar sjálfkrafa eða handvirkt inn.
- Myndrænar auglýsingar birtast við hliðina á eða yfir efni. Þessar auglýsingar eru sýnilegar í tölvu.
Setja inn miðjuauglýsingar
Svona seturðu inn miðjuauglýsingar í beinstreymi:
- Opnaðu YouTube Studio.
- Smelltu á Búa til Bein útsending.
- Byrjaðu beinstreymi frá Streymisflipanum eða skipuleggðu beinstreymi frá Stjórnunarflipanum.
- Efst skaltu smella á Breyta Tekjuöflun.
- Gakktu úr skugga um að kveikt sé á tekjuöflun.
- Veldu auglýsingastillingar fyrir beinstreymi:
- Láta YouTube setja inn auglýsingar fyrir þig: YouTube birtir miðjuauglýsingar á hentugum augnablikum í beinstreymi og þú velur tíðni auglýsingahléa:
- Sjaldnar: lægsta tíðnin og minnstu tekjumöguleikarnir
- Venjuleg: miðlungstíðni og miðlungstekjumöguleikar
- Ágeng: hæsta tíðnin og mestu tekjumöguleikarnir
- Athugaðu: Við látum þig eftir sem áður vita hvenær auglýsing er um það bil að birtast áhorfendum ef þú skyldir vilja sleppa henni
- Velja hvernig auglýsingar birtast: Þú getur valið miðjuauglýsingahlé handvirkt EÐA stillt tímann á milli auglýsinga. Þú getur valið að hafa auglýsingahlé með 6, 12, 18, 24 eða 30 mínútna millibili.
- Athugaðu: Tekjumöguleikar þínir geta verið minni en ef þú lætur YouTube setja inn auglýsingar fyrir þig.
- Láta YouTube setja inn auglýsingar fyrir þig: YouTube birtir miðjuauglýsingar á hentugum augnablikum í beinstreymi og þú velur tíðni auglýsingahléa:
- Smelltu á Áfram og haltu áfram að setja upp beinstreymið.
- Ekki er öruggt að allir áhorfendur sjái miðjuauglýsingu. Ef engin auglýsing birtist munu áhorfendur áfram sjá beinstreymið þitt.
- Ef áhorfandi sleppir auglýsingu eða auglýsingin klárast, fara þeir aftur í beinstreymið.
Seinka miðjuauglýsingu
Ef þú velur að láta YouTube setja inn miðjuauglýsingar fyrir þig geturðu seinkað birtingu þeirra á mikilvægum augnablikum ef þú vilt ekki trufla áhorfendur.
Í stjórnrými beinna útsendinga ferðu efst í hægra hornið og smellir á Seinka auglýsingum . Birtingu miðjuauglýsinga seinkar þá um 10 mínútur. Fimm sekúndna niðurteljari birtist í stjórnrými beinna útsendinga áður en auglýsingarnar birtast.
Miðjuauglýsingastillingar fyrir rás
Rásir án réttindastjórnunar sem afla tekna get valið sjálfgefnar miðjuauglýsingastillingar fyrir framtíða beinstreymi á rás. Þannig geturðu valið sjálfgefnar tekjuöflunarstillingar fyrir öll ný beinstreymi á rás.
Til að breyta stillingum fyrir rás: Opnaðu stjórnrými beinna útsendinga Neðst í vinstra horninu skaltu smella á Stillingar .
Auglýsingatekjur af beinstreymi
Í YouTube-greiningu geturðu aðskilið auglýsingatekjur af beinstreymum og endurspiluðum beinstreymum frá öðrum tekjum. Til að aðskilja auglýsingatekjur af beinstreymum skaltu velja síuna Í beinni.