COPPA and YouTube: Answering Your Top Questions
Óháð staðsetningu þinni ber þér lagaleg skylda til að fylgja lögum um persónuvernd barna á netinu (e. Children's Online Privacy Protection Act) og/eða öðrum lögum. Þér ber skylda til að láta okkur vita hvort vídeóin þín eru ætluð börnum ef þú býrð til efni fyrir börn. Þessar breytingar eru til að tryggja vernd og persónuvernd barna betur og fylgja lögum.
Hvers vegna er það á ábyrgð höfundar að fylgja lögunum ef YouTube sér um að safna gögnum (ekki höfundurinn)?
- Það sé öruggt og viðeigandi fyrir alla aldurshópa (þ.e. er „fjölskylduvænt“)
- Það fjalli um efni sem er yfirleitt tengt við börn
- Svo vilji til að börn horfi á það
Hér eru nokkur dæmi um þær gerðir vídeóa sem gætu talist vera fyrir „almenna áhorfendur“ þegar upplýsingar eru ekki fyrir hendi til að sýna að vídeóinu sé beint til barna:
- Heimaframkvæmdavídeó sem kennir hvernig á að endurgera dúkkur eða búa til leirkalla
- Fjölskylduvlogg um heimsókn í skemmtigarð
- Vídeó með ítarlegum upplýsingum um hvernig á að búa til tölvuleikjamodd
- Háðskt vídeó með fullorðnum að syngja með barnalögum
- Teiknað dagskrárefni sem höfðar til allra
- Minecraft-vídeó með fullorðinshúmor
Mundu að íhuga vandlega til hverra þú vilt ná með vídeóunum þínum þegar þú metur efnið þitt og þættina hér fyrir ofan.
Hér eru nokkur dæmi um þær gerðir vídeóa sem gætu talist vera fyrir „almenna áhorfendur“ þegar upplýsingar eru ekki fyrir hendi til að sýna að vídeóinu sé beint til barna:
- Heimaframkvæmdavídeó sem kennir hvernig á að endurgera dúkkur eða búa til leirkalla
- Fjölskylduvlogg sem segir öðrum foreldrum frá heimsókn í skemmtigarð
- Vídeó með ítarlegum upplýsingum um hvernig á að búa til tölvuleikjamodd eða notandamyndir
- Teiknað efni sem höfðar til allra
- Leikjavídeó með fullorðinshúmor
Get ég ekki bara bætt við fyrirvara um að efnið mitt sé ekki ætlað börnum?
- Hvort efnið innihaldi persónur, virkni, leiki, leikföng, lög, sögur eða annað sem höfðar sérstaklega til barna.
- Aðrar yfirlýsingar þínar um ætlaðan áhorfendahóp efnisins sem eru frábrugðnar fyrirvaranum (t.d. yfirlýsingar á persónulegu vefsvæði)
Þarf ég að sanna aldur áhorfenda minna ef ég hef ekki verkfærin til þess? Hvað telur FTC sem sönnun fyrir því að börn horfi á efnið mitt?
Hvaða eiginleikar eru ekki í boði í efni sem er ætlað börnum og hvers vegna eru þeir ekki í boði?
Hvernig munu tillögur virka fyrir efni sem er ætlað börnum eða sem er ekki ætlað börnum? Hefur þetta áhrif á hvernig vídeóin mín birtast í tillögum?
Þetta vídeó virðist óviðeigandi. Hvers vegna er það stillt sem „ætlað börnum“?
Þegar markhópur vídeós eða rásar er stilltur sem „ætlað börnum“ bendir það til þess að börn séu annaðhvort aðalmarkhópur efnisins eða að vídeóinu sé beint að börnum. Boðið er upp á að markhópur efnis sé stilltur sem „ætlað börnum“ til að höfundar geti betur fylgt COPPA.
Við erum einnig með kerfi til að ákvarða hvort efni á YouTube er viðeigandi. Reglur netsamfélagsins á YouTube tilgreina hvað er leyft og hvað ekki á YouTube. Við fjárfestum í tækni og starfsfólki sem hjálpar til við að tryggja að börn og fjölskyldur njóti sem bestrar verndar á YouTube. Við setjum til dæmis aldurstakmark á efni sem er ætlað fullorðnum en mætti auðveldlega rugla saman við fjölskylduefni. Við fjarlægjum líka efnið ef því er greinilega beint að ólögráða einstaklingum og fjölskyldum í heiti, lýsingu eða merkjum. Ef þú sérð efni sem þú telur brjóta gegn reglum netsamfélagsins á YouTube geturðu líka notað tilkynningaeiginleikann til að tilkynna það og þá mun starfsfólk YouTube skoða efnið.