Þú getur notað flipann Virkni fyrir vídeó í YouTube greiningu til að fá yfirlit yfir á hvað áhorfendur þínir horfa og gagnvirkni þeirra við efnið frá þér. Spjaldið með helstu mæligildunum sýnir áhorfstímann (í klukkustundum) og meðallengd áhorfs Nánar um hvernig virknimæligildi eru talin.
Skoða skýrslur um virkni
- Skráðu þig inn í YouTube Studio.
- Veldu Greining í vinstri valmyndinni.
- Í efstu valmyndinni skaltu velja Virkni.
Vinsælustu vídeóin
Skýrslan um vinsælustu vídeóin sýnir vinsælustu vídeóin þín. Þú getur notað stækkuðu greiningarskýrsluna til að sjá fleiri mæligildi, svo sem áhorf og birtingar.
Vinsælustu spilunarlistarnir
Skýrslan um vinsælustu spilunarlistana sýnir þér hvaða spilunarlistar frá þér eru með mesta áhorfstímann. Það skiptir ekki máli hvort sum vídeóin á spilunarlistanum komi frá öðrum rásum. Þú getur séð gögn um spilunarlista þótt þú hafir aldrei hlaðið upp vídeói.
Vinsælustu færslurnar
Skýrslan um vinsælustu færslurnar sýnir vinsælustu færslurnar frá þér miðað við læk eða atkvæði í snjalltæki. Notaðu stækkuðu greiningarskýrsluna til að sjá meiri upplýsingar, svo sem smellihlutfall.
Vinsælustu spjöldin
Skýrslan um vinsælustu spjöldin sýnir þér hvaða spjöld áhorfendur smelltu oftast á yfir öll vídeó á rásinni þinni.
Vinsælustu vídeó eftir lokaskjámynd
Skýrslan um vinsælustu vídeó eftir lokaskjámynd sýnir þér hvaða lokaskjámyndir áhorfendur smelltu á oftast á allri rásinni þinni.
Vinsælustu einingategundir lokaskjámynda
Skýrslan um vinsælustu einingategundir lokaskjámynda sýnir þér á hvaða einingategundir áhorfendur smelltu á oftast á allri rásinni þinni.
Helstu augnablik vegna áhorfendaheldni
Skýrslan yfir helstu augnablik fyrir áhorfendaheldni sýnir hversu vel ólík augnablik í vídeóinu héldu athygli áhorfenda. Þú getur líka notað dæmigerða heldni til að bera saman 10 seinustu vídeóin þín af svipaðri lengd.
Líkar eða mislíkar (hvert vídeó fyrir sig)
Skýrslan líkar (eða mislíkar) tekur saman hversu mörgum áhorfendum líkaði eða mislíkaði við vídeóin þín. Þú getur bætt við líkar (eða mislíkar) mæligildinu við stækkuðu greiningarskýrsluna fyrir rásina.
Smellihlutfall fyrir einingu lokaskjámyndar (hvert vídeó fyrir sig)
Skýrslan um smellihlutfall fyrir einingu lokaskjámyndar sýnir þér hversu oft áhorfendur smelltu á hverja einingu lokaskjámyndar í vídeóinu þínu. Skýrslan er einungis tiltæk eftir að þú smellir á ákveðið vídeó.
Vinsælustu endurblöndurnar
Þessi skýrsla sýnir efni frá þér sem hefur verið endurblandað til að búa til Shorts. Skýrslan sýnir líka hversu oft efnið þitt hefur verið endurblandað og fjölda áhorfa á endurblöndun. Smelltu eða ýttu á SJÁ MEIRA fyrir nánari upplýsingar um endurblöndun.
Algengar spurningar
Hvers vegna sé ég engin gögn fyrir tiltekin spilunarlista?
Skiptir máli hvort ég eigi öll vídeóin á spilunarlistanum?
Ef ég hef aldrei hlaðið upp vídeói, get ég séð gögn fyrir vinsælasta spilunarlistann minn?
Hvers vegna breyttist fjöldi læka hjá mér?
Hvers vegna er fjöldi læka í greiningu frábrugðinn fjöldanum á áhorfssíðunni?
Mæligildi til að vita
Meðallengd áhorfs |
Áætluð meðallengd áhorfs í mínútum fyrir valið vídeó og tímabil. |
Áhorfstími (klst) |
Hversu lengi áhorfendur hafa horft á vídeóið þitt. |
Áhorf |
Fjöldi réttmæts áhorfs fyrir rásirnar þínar eða vídeó. |
Smellafjöldi spjalds |
Fjöldi smella á tiltekið spjald. |
Sýnd spjöld |
Fjöldi skipta sem spjald hefur birst. Hvert spjald getur birst að hámarki einu sinni við hvert áhorf. |
Smellafjöldi kynningarspjalds |
Fjöldi smella á kynningarspjald. Smellir á spjaldtákn eru eignaðir síðustu kynningu sem sýnd var. |
Sýnd kynningarspjöld |
Heildarfjöldi skipta sem kynning hefur verið sýnd. Kynning getur birst nokkrum sinnum við hvert áhorf. |
Smellir á hvert sýnt spjald |
Fjöldi skipta sem áhorfendur smelltu á spjald þegar það var birt. |
Smellir á hverja birta lokaskjámyndareiningu |
Hversu oft áhorfendur smelltu á lokaskjámyndareiningu þegar hún var birt. |
Smellir á lokaskjámynd |
Fjöldi skipta sem smellt var á lokaskjámyndareiningu. |
Einingar lokaskjámynda sýndar |
Fjöldi skipta sem lokaskjámyndaeining birtist. |
Smellafjöldi á hvert sýnt kynningarspjald |
Hlutfall smella á kynningu á hverja kynningabirtingu. |