YouTube-ummæli: svara, sía og stjórna
Ef eigandi vídeós hefur kveikt á ummælum geturðu birt ummæli og lækað, dissað eða svarað ummælum annarra við vídeó, lag eða hlaðvarp á YouTube og í YouTube Music-forritinu. Þú getur líka breytt eða eytt öllum ummælum sem þú setur inn. Svör við ummælum eru birt í þræði fyrir neðan upphaflegu ummælin þannig að þú getur fylgt samtalinu.
Svaraðu ummælum í snjallsjónvarpinu þínu
Nú getur þú skoðað og svarað ummælum meðan þú horfir á efni í snjallsjónvarpinu eða leikjatölvunni þinni. Til að skoða ummælin við vídeó skaltu fara á áhorfssíðu vídeósins og velja titil vídeósins. Upplýsingahlutinn birtist með ummælasvæði vídeósins. Veldu ummælareitinn til að skoða heildarlista yfir ummæli við vídeóið, þar á meðal:
- Ummæli sem höfundurinn hefur fest
- Fjöldi læka
- Fjöldi svara
Veldu ummæli til að lesa ummælin í heild, skoða svör, læka eða dissa ummælin.
Til þess að svara eða birta ummæli skaltu samstilla snjallsjónvarpið eða leikjatölvuna þína við símann þinn og skrifa ummælin í símanum.
Til að bæta við ummælum eða svari:
- Opnaðu YouTube-forritið í símanum.
- Tryggðu að þú hafir skráð þig inn á sama Google-reikning í báðum tækjum.
- Sprettigluggi opnast í YouTube-forritinu og biður þig um að tengjast YouTube í sjónvarpinu þínu.
- Ýttu á Tengja.
- Ummæli við vídeóið sem þú ert að horfa á í sjónvarpinu hlaðast inn í YouTube forritið sem gerir þér kleift að birta ummæli og eiga í samskiptum snurðulaust.
Birtu ummæli við vídeó
Opinber vídeó
Þú getur sett inn ummæli við lög, vídeó, hlaðvörp og upphlaðna tónlist frá YouTube og YouTube Music. Öll ummæli við opinber vídeó á YouTube eru opinber og allir geta svarað ummælum sem þú birtir. Ef þú notar Google-reikning eru ummæli sem þú birtir á YouTube sýnileg notendum utan lénsins þíns.
Til að bæta við ummælum
- Finndu ummælasvæðið undir vídeóinu.
- Sláðu inn í Bæta við ummælum... reitinn.
- Sláðu inn ummæli.
- Smelltu á Ummæli.
Lokuð vídeó
Ekki er hægt að skrifa ummæli við lokuð vídeó. Ef þú vilt leyfa ummæli við vídeó sem er ekki opinbert skaltu birta óskráð vídeó í staðinn.
Óskráð vídeó
Þú getur birt ummæli og svarað ummælum við óskráð vídeó. Allir sem eru með tengil á vídeóið geta séð ummæli við óskráð vídeó. Nánar um óskráð vídeó og birtingarstillingar.
Svara ummælum við lög, vídeó, hlaðvörp og upphlaðna tónlist frá YouTube og YouTube Music.
- Smelltu á SVARA fyrir neðan ummæli.
- Sláðu inn ummæli.
- Smelltu á SVARA.
Bæta stíl við ummæli
Þú getur notað sniðinn texta til að sníða ummælin með algengum sérmerkjum, til dæmis:
*feitletrun texta*
→ feitletrun_skáletraður texti_
→ skáletrun-gegnumstrikaður texti-
→ gegnumstrikun
Bættu tenglum við ummæli
Ef þú bætir vefslóð við ummælin þín munu þau birtast sem tengill.
Þú getur notað hjarta til að sýna að þú kunnir vel að meta ummæli áhorfanda í samfélagsflipanum og á áhorfssíðunni.
- Skráðu þig inn á YouTube.
- Farðu í færslu í samfélagsflipanum.
- Þú finnur hjartað við hliðina á þumli upp og þumli niður.
Áhorfendur munu sjá notandamynd þína og lítið rautt hjarta niðri til vinstri og fá tilkynningu (fer eftir stillingum áhorfanda á móttöku efnis í tölvu og farsíma) um að rásareigandi „elski ummælin þín“.
Til að festa ummæli þarftu að leyfa aðgang að ítareiginleikum á rásinni þinni. Það getur tekið allt að sólarhring fyrir ítareiginleika að birtast á rásinni þinni eftir að kveikt hefur verið á þeim.
Beindu athygli aðdáendanna að ummælum með því að festa þau efst á ummælasvæðinu. Í snjalltækjum þurfa áhorfendur að stækka ummælasvæðið til að sjá festu ummælin. Þú getur valið að festa ummæli frá þér eða ummæli frá aðdáanda.
- Skráðu þig inn á YouTube.
- Í ummælunum fyrir neðan vídeó skaltu velja ummælin sem þú vilt festa.
- Smelltu á Meira Festa . Ef þú hefur nú þegar fest ummæli munu þessi koma í stað þeirra.
Athugaðu: Þú getur Losað ummæli hvenær sem er og þá verða þau flutt aftur í upphaflega stöðu. - Smelltu á FESTA til að staðfesta.
Í tölvu munu áhorfendur sjá festu ummælin efst á áhorfssíðunni með tákninu „Fest af“ og heiti rásarinnar þinnar. Í snjalltækjum þarf fólk að ýta á ummælasvæðið til að stækka það.
Farðu í ummæli og notaðu svo táknið Læka eða Dissa .
Ábending: Ef þú sérð ummæli sem þú telur vera óviðeigandi geturðu tilkynnt þau sem ruslefni eða misnotkun. Ef þú ert höfundur geturðu líka notað stjórnunarverkfæri fyrir ummæli til að stjórna ummælum við vídeóin þín.
- Haltu bendlinum efst til hægri í ummælunum.
- Smelltu á Meira .
- Veldu Breyta eða Eyða .
Algengar spurningar um forskoðun á ummælum
Hvaða ummæli birtast á forskoðunarsvæði ummæla?
Ummæli geta birst á forskoðunarsvæðum ummæla af mörgum ástæðum. Til dæmis ef ummælin:
- Voru nýlega birt
- Voru fest eða ef höfundur vídeósins setti „hjarta“ við þau
Hvernig skoða ég öll ummæli?
Til að skoða öll ummæli skaltu ýta hvar sem er á forskoðunarsvæði ummæla.
Til að fara aftur í vídeólistann horfa næst skaltu ýta á X í horninu efst til hægri.
Munu festu ummælin mín birtast á forskoðunarsvæðum ummæla?
Það er takmarkað pláss á forskoðunarsvæði ummæla og þess vegna er ekki víst að ummælin þín birtist þar þó að þú festir þau. Fest ummæli birtast þó áfram sem fyrstu ummælin þegar einhver ýtir til að skoða öll ummæli.
Gilda núverandi stjórnunarstillingar ummæla hjá mér um forskoðunarsvæði ummæla?
Já. Allar stjórnunarstillingar ummæla gilda fyrir forskoðunarsvæði ummæla, þar á meðal hvað varðar útilokuð orð og falda notendur. Nánar um hvernig þú getur stjórnað og breytt ummælum.Áminningar um ummæli, viðvaranir og tímamörk
Áminningar um ummæli
Áður en þú birtir ummæli gætirðu fengið áminningu sem ætlað er að hvetja til virðingar í samskiptum á YouTube. Þessi áminning sést þegar kerfið okkar metur sem svo að ummæli þín gætu talist móðgandi fyrir aðra. Íhugaðu ummælin þín eða skoðaðu reglur netsamfélagsins áður en þú birtir þau.
Athugaðu:Þessi áminning er sem stendur bara í boði fyrir ummæli á ensku eða spænsku.
Viðvaranir um fjarlægingu ummæla
Þegar þú hefur birt ummæli gætirðu fengið tilkynningu um að ummælin hafi verið fjarlægð. Ummæli geta verið fjarlægð þegar kerfi YouTube metur sem svo að ummælin geti talist endurtekið brotið gegn reglum netsamfélagsins á YouTube. Ef þú ert ósammála fjarlægingunni geturður sent okkur ábendingu hér.