Reglur um gróft orðbragð

Öryggi höfunda, áhorfenda og samstarfsaðila okkar er í algjörum forgangi hjá okkur. Við treystum ykkur öllum til að hjálpa okkur að vernda þetta einstaka og lifandi samfélag. Miklu skiptir að þú skiljir reglur netsamfélagsins okkar og hlutverk þeirra í að tryggja öryggi YouTube, en þar berum við öll ábyrgð. Taktuþér tíma til að lesa vandlega reglurnar hér að neðan. Þú getur líka skoðað þessa síðu til að fá fullan lista yfir leiðbeiningar okkar.

Sumt orðbragð gæti verið óviðeigandi fyrir áhorfendur undir 18 ára.

Ef þú finnur efni sem brýtur gegn þessum reglum skaltu tilkynna það. Leiðbeiningar um hvernig á að tilkynna brot á reglum netsamfélagsins má finna hér. Ef þú fannst nokkur vídeó eða ummæli sem þú vilt tilkynna geturðu tilkynnt rásina.

Hvað reglurnar þýða fyrir þig

Ef þú birtir efni

Klúrt efni sem brýtur gegn þessum reglum getur leitt til þess að aldurstakmark verði sett á, efni fjarlægt eða þú fáir á þig punkt. Við gætum horft til eftirfarandi þátta þegar ákveðið er hvort eigi að setja aldurstakmark á efni, fjarlægja það eða setja punkt á rásina.

  • Notkun á kynferðislega grófu orðbragði eða frásögnum
  • Notkun á grófum blótsyrðum í efninu 
  • Notkun á grófum blótsyrðum eða kynörvandi orðum í titli efnis, smámynd eða tengdum lýsigögnum
  • Notkun á óhóflegum kynferðislegum hljóðum

Athugaðu: Listinn hér að ofan er ekki tæmandi.

Efni með aldurstakmarki

Hér eru nokkur dæmi um efni sem gæti sætt aldurstakmarki:
  • Vídeó þar sem lagt er upp úr blótsyrðum, til dæmis samansafn, lag eða bútur sem tekinn er úr samhengi
  • Vídeó sem notar gróf blótsyrði í titlinum 
  • Vídeó sem endurtekið notar gróft eða kynferðislegt orðbragð

Þessar reglur eiga við um vídeó, lýsingar á vídeóum, ummæli, beinstreymi, hljóð og allar aðrar YouTube-vörur eða eiginleika. Mundu að þetta eru einungis dæmi og þú skalt ekki birta efni ef þú telur að það kunni að brjóta gegn þessum reglum.

Við getum leyft gróft orðbragð ef megintilgangur er í fræðsluskyni, heimildarskyni, vísindaskyni eða listrænu skyni og efnið er ekki sett inn að ástæðulausu. Til dæmis heiti lags með blótsyrði eða lag sem inniheldur mikið magn blótsyrða. Ef gefið er samhengi í efni, heiti og lýsingu er auðveldara fyrir bæði áhorfendur og okkur að greina megintilgang vídeósins.

Ef efni brýtur gegn reglunum

Ef efni frá þér brýtur gegn þessum reglum munum við fjarlægja efnið og láta þig vita með tölvupósti. Ef við getum ekki staðfest að tengill sem þú birtir sé öruggur gætum við fjarlægt tengilinn. Athugaðu að brotlegar vefslóðir sem birtar eru í vídeói eða lýsigögnum vídeós geta leitt til þess að vídeóið sé fjarlægt.

Ef þetta er í fyrsta skipti sem þú brýtur gegn reglum netsamfélagsins færðu líklega aðvörun án þess að rásin þín þurfi að sæta refsingu. Þú munt geta klárað þjálfun í reglum til að viðvörunin renni út eftir 90 daga. En ef sömu reglur eru brotnar innan 90 daga gluggans mun viðvörunin ekki renna út og rásin þín mun fá punkt. Ef þú brýtur aðrar reglur eftir að þú klárar þjálfunina muntu fá aðra viðvörun.

Ef þú færð 3 punkta innan 90 daga verður rásinni lokað. Nánar um punktakerfið.

Við gætum sagt upp rásinni þinni eða reikningnum vegna endurtekinna brota á reglum netsamfélagsins eða þjónustuskilmálum. Einnig gætum við sagt upp rásinni þinni eða reikningnum eftir eitt alvarlegt brot eða ef eini tilgangur rásarinnar er að brjóta gegn reglum. Við gætum komið í veg fyrir notendur sem ítrekað gerast brotlegir geti klárað regluþjálfun síðar. Nánar um varanlega lokun rásar eða reiknings.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
2388079459044552872
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
59
false
false