Virkjaðu eða fjarlægðu YouTube Premium-fríðindi í YouTube Kids

Ef þú ert ekki YouTube Premium-meðlimur nú þegar geturðu kynnt þér hvernig þú gerist það. Viltu spyrja að einhverju varðandi YouTube Premium-aðildina þína?Hafðu þá samband við þjónustudeild YouTube.

Virkja YouTube Premium í YouTube Kids

Ef þú vilt virkja fríðindi sem tengjast aðild að YouTube Premium í YouTube Kids-forritinu þarftu að vera með YouTube Premium-aðild á Google-reikningnum þínum. Svona tengir þú YouTube Kids-forritið í tækinu við aðildina þína:

  1. Ýttu á lástáknið neðst í horninu á hvaða síðu sem er í forritinu.
  2. Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
  3. Veldu Stillingar .
  4. Ýttu á Virkja YouTube Premium.
  5. Ef þú hefur nú þegar skráð þig inn á Google-forrit í þessu tæki með reikningnum sem tengist YouTube Premium-aðildinni þinni skaltu velja hann úr reikningsvali. Annars skaltu ýta á Bæta YouTube Premium-reikningi við og skrá þig inn.
Athugaðu: Ef þú skráir þig inn á Google-reikninginn þinn verður hann tiltækur í öðrum Google-forritum í sama tæki.
  1. Ýttu á Senda tölvupóst um samþykki foreldris.
  2. Athugaðu tölvupóstinn þinn og sjáðu hvort þú hefur fengið póst með staðfestingarkóða frá YouTube Kids.
  3. Sláðu inn staðfestingarkóðann í YouTube Kids-forritið.

Fríðindi fyrir meðlimi YouTube Premium verða þá tiltæk í YouTube Kids-forritinu í þessu tæki.

Þú skráir þig ekki inn í YouTube Kids-forritið þótt þú virkir YouTube Premium með Google-reikningnum þínum þar. Áhorfs- og leitarferill, ef skráning þeirra er virkjuð, verða áfram takmarkaðir við YouTube Kids-forritið í því tæki og ekki tengdir við Google-reikninginn þinn.

Skoðaðu þessa grein í hjálparmiðstöðinni til að fá nánari upplýsingar um hvernig þú nýtir YouTube Premium-fríðindi fyrir börn.

Fjarlægja YouTube Premium-fríðindi eða skipta um reikning

Svona fjarlægir þú fríðindi sem tengjast YouTube Premium úr YouTube Kids-forritinu eða skiptir um reikning sem notaður er til að veita aðildarfríðindi fyrir YouTube Premium:

  1. Ýttu á lástáknið neðst í horninu á hvaða síðu sem er í forritinu.
  2. Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
  3. Veldu Stillingar .
  4. Ýttu á YouTube Premium-reikningur.
  5. Ýttu á Fjarlægja úr forriti.
Athugaðu:Þar með er tengingin á milli aðildar þessa reiknings að YouTube Premium og YouTube Kids-forritsins fjarlægð úr þessu tæki. Hins vegar er hugsanlegt að reikningurinn sé enn tengdur við önnur Google-forrit í tækinu.

Þú getur virkjað fríðindi sem tengjast aðild að YouTube Premium aftur með því að nota hvaða reikning sem er með aðild að YouTube Premium.

Fáðu áskrift að rásinni YouTube Viewers til að fá nýjustu fréttir, uppfærslur og ábendingar.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
13208437617218266249
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
false
false