Það fylgja því ýmis fríðindi að tengja YouTube Premium-aðild við YouTube Kids. Til dæmis getið þú og barnið þitt horft á vídeó í YouTube Kids án greiddra auglýsinga. Þú færð líka aðgang að niðurhali og spilun í bakgrunni.
Horfa á vídeó án greiddra auglýsinga
Þú og barnið þitt getið horft á vídeó í YouTube Kids án greiddra auglýsinga. Vídeó sem notendur okkar hlaða upp á YouTube Kids eru ekki greiddar auglýsingar og eru því ekki útilokuð úr forritinu með aðild að YouTube Premium.
Niðurhöl
Þegar þú notar YouTube Premium í YouTube Kids getur þú horft á sótt vídeó án nettengingar.
Með snjallniðurhali eru vídeó sem mælt er með sótt sjálfvirkt í tækið svo að þú getir horft á þau án nettengingar. Sjálfgefið er að kveikt sé á þessum eiginleika svo að þú hafir alltaf aðgang að frábæru efni á YouTube Kids.
Til að sjá hvaða vídeó þú hefur sótt skaltu skoða Niðurhal á heimaskjá YouTube Kids.
Slökkva á snjallniðurhali
- Veldu lásinn í horninu á skjánum í YouTube Kids-forritinu.
- Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
- Veldu Stillingar .
- Veldu Bakgrunnur og niðurhal.
- Slökktu á Snjallniðurhali.
Ef þú slekkur á snjallniðurhali geturðu í staðinn valið handvirkt hvaða vídeó þú vilt sækja:
- Farðu í YouTube Kids-forritið og finndu vídeó sem þú vilt sækja.
- Ýttu á Meira .
- Veldu Sækja vídeó.
Breyta niðurhalsstillingum
- Veldu lásinn í horninu á skjánum í YouTube Kids-forritinu.
- Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
- Veldu Stillingar .
- Veldu Bakgrunnur og niðurhal.
- Kveiktu eða slökktu á Sækja um Wi-Fi eingöngu eða ýttu á Gæði niðurhals til að breyta eftir þörfum.
Vista niðurhal og eyða tilteknum vídeóum
- Farðu í YouTube Kids-forritið og finndu vídeó sem þú vilt sækja.
- Ýttu á Meira.
- Veldu Vista í niðurhali.
- Farðu í YouTube Kids-forritið og finndu vídeó sem þú vilt eyða úr niðurhali.
- Ýttu á Meira.
- Smelltu á Eyða úr niðurhali.
Eyða öllu niðurhali
- Veldu lásinn í horninu á skjánum í YouTube Kids-forritinu.
- Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
- Veldu Stillingar .
- Veldu Bakgrunnur og niðurhal.
- Veldu Eyða niðurhali
Spilun í bakgrunni
Spilaðu vídeó meðan þú notar önnur forrit eða þegar slökkt er á skjánum. Stillingin slökkt á spilun í bakgrunni er sjálfgefin. Svona kveikir þú á spilun í bakgrunni:
- Veldu lásinn í horninu á skjánum í YouTube Kids-forritinu.
- Leystu stærðfræðidæmið eða sláðu inn sérsniðinn aðgangskóða.
- Veldu Stillingar .
- Veldu Bakgrunnur og án nettengingar.
- Kveiktu á Spilun í bakgrunni.
Þú skalt uppfæra í nýjustu útgáfuna af YouTube Kids-forritinu til að passa að þú hafir aðgang að öllum eiginleikum sem fylgja aðild þinni að YouTube Premium.