Kaupa SúperTakk

Athugaðu: Sum ný kaup á Ofurspjalli, Super Stickers eða SúperTakk í YouTube Android-forritinu verða innheimt í gegnum Google Play. Breytingin hefur hvorki áhrif á verðlagningu né kostnað, aðeins á hvar kaupin eru gjaldfærð. Þú getur farið á pay.google.com til að sjá nýjar skuldfærslur og athuga hvernig er skuldfært hjá þér.

Þú getur sýnt uppáhaldshöfundunum þínum aukið þakklæti fyrir efnið frá þeim og látið á þér bera á ummælasvæðinu með SúperTakk. SúperTakk gerir þér kleift að kaupa skemmtilega, staka hreyfimynd sem er bara sýnd þér fyrir ofan lengra vídeó eða Short. Þú færð einnig sem bónus einkennandi, litrík og sérsníðanleg ummæli á ummælasvæðinu. Þú getur valið úr mismunandi verði við kaup á SúperTakk.

Þú verður að vera á stað sem býður upp á SúperTakk til að kaupa það í gjaldgengum vídeóum.

How to buy Super Thanks

Fáðu áskrift að YouTube-höfundarásinni til að fá nýjustu fréttir, uppfærslur og ábendingar.
 

Kaupa SúperTakk

  1. Notaðu tölvu til að opna lengra vídeó.
  2. Veldu SúperTakk undir vídeóinu .
  3. Veldu upphæðina sem þú vilt eyða.
    • Verð eru mismunandi milli hreyfimynda. Ef þú greiðir meira færðu fullkomnari SúperTakk-hreyfimynd.
    • Þú færð líka sérstök, litrík og sérsníðanleg ummæli í bónus. Til að sérsníða SúperTakk-ummælin þín smellirðu á textareitinn. Þú getur líka breytt ummælunum eftir að þau eru birt.
  4. Veldu KAUPA OG SENDA.
  5. Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum til að klára kaupin.

Þegar þú hefur keypt SúperTakk eru ummælin birt á ummælasvæðinu með litríkan kubb við hliðina á þeim. Kaupupphæðin mun sjást í ummælunum þínum.

Athugasemdir:
  • SúperTakk-ummælin þín, rásarheitið, prófílmyndin og greiðsluupphæðin eru sýnileg öðrum. Þessar upplýsingar geta einnig verið aðgengilegar rásinni gegnum gagnaforritaskil YouTube og hún getur deilt þeim með þjónustum þriðju aðila.
  • Eins og gildir um allt á YouTube þarf að fylgja reglum netsamfélagsins þegar þú sendir SúperTakk.

Kauphámörk fyrir SúperTakk

Þú getur keypt SúperTakk eins oft og þú vilt í sama vídeói, háð takmörkununum sem deilt er hér að neðan.
Daglegt og vikulegt kauphámark fer eftir þínu landi/svæði. Almennt séð geturðu eyttt allt að 500 USD á dag eða 2.000 USD á viku (eða sambærilegt í þínum gjaldmiðli) í:
  • Ofurspjall
  • Super Stickers
  • SúperTakk
  • Öll 3 til samans

Endurgreiðslur fyrir SúperTakk

Ekki er hægt að endurgreiða frjálsar greiðslur vegna SúperTakk. Þú getur skoðað endurgreiðslureglur YouTube til að fá nánari upplýsingar. Ef þú átt í vandræðum eða ert með spurningar um greiðslu skaltu hafa samband við þjónustuteymið.
Eins og gildir um allt á YouTube þarf að fylgja reglum netsamfélagsins þegar þú sendir ummæli með SúperTakk. Ef ummælum sem voru birt með SúperTakk er eytt, breytt, eða þau fjarlægð færðu ekki endurgreitt.

SúperTakk ummæli

Þegar þú kaupir SúperTakk færðu einkennandi, litrík og sérsníðanleg ummæli sem bónus. Til að sérsníða SúperTakk ummælin þín skaltu smella í textareitinn eða ýta á Breyta  við hliðina á sjálfgefnum texta. Hafðu í huga að SúperTakk ummæli verða að fylgja reglum netsamfélagsins

Þegar þú klárar kaupin birtast ummælin á ummælasvæðinu með litríkan kubb við hliðina á þeim. Kaupupphæðin og ummælin þín verða sýnileg öllum. Þú getur eytt ummælunum eftir að þau birtast ef þú vilt. 

Eftir að þú hefur greitt fyrir SúperTakk sendum við þér kvittun til að staðfesta kaupin.

Stjórnun á ummælum

SúperTakk ummæli verða að fylgja reglum netsamfélagsins. Höfundar og YouTube geta stjórnað ummælum, líka texta og myndum. Hægt er að fjarlægja stjórnuð ummæli hvenær sem er, af hvaða ástæðu sem er og án fyrirvara. Mundu að þú getur líka eytt ummælunum eftir að þau birtast.
Ef ummælum sem voru birt með SúperTakk er eytt, breytt, eða þau fjarlægð færðu ekki endurgreitt. Hafðu í huga að ekki er hægt að endurgreiða frjálsar greiðslur vegna SúperTakk. Ef SúperTakk ummæli eru fjarlægð vegna brota á reglum okkar mun YouTube gefa okkar hluta teknanna til góðgerðarmála.

Tiltækileiki SúperTakk og reglur

Staðsetningar þar sem SúperTakk er í boði
Þú getur keypt SúperTakk í snjalltækjum eða tölvum á eftirfarandi stöðum:
  • Alsír
  • Amerísku Samóaeyjar
  • Argentína
  • Arúba
  • Ástralía
  • Austurríki
  • Barein
  • Hvíta-Rússland
  • Belgía
  • Bermúdaeyjar
  • Bólivía
  • Bosnía og Hersegóvína
  • Brasilía
  • Búlgaría
  • Kanada
  • Cayman-eyjar
  • Chile
  • Kólumbía
  • Kosta Ríka
  • Króatía
  • Kýpur
  • Tékkland
  • Danmörk
  • Dóminíska lýðveldið
  • Ekvador
  • Egyptaland
  • El Salvador
  • Eistland
  • Finnland
  • Frakkland
  • Franska Gvæjana
  • Franska Pólýnesía
  • Þýskaland
  • Grikkland
  • Gvadelúpeyjar
  • Gúam
  • Gvatemala
  • Hondúras
  • Hong Kong
  • Ungverjaland
  • Ísland
  • Indland
  • Indónesía
  • Írland
  • Ísrael
  • Ítalía
  • Japan
  • Jórdanía
  • Kenía
  • Kúveit
  • Lettland
  • Líbanon
  • Liechtenstein
  • Litháen
  • Lúxemborg
  • Malasía
  • Malta
  • Mexíkó
  • Marokkó
  • Holland
  • Nýja-Sjáland
  • Níkaragva
  • Nígería
  • Norður-Makedónía
  • Norður-Maríanaeyjar
  • Noregur
  • Óman
  • Panama
  • Papúa Nýja-Gínea
  • Paragvæ
  • Perú
  • Filippseyjar
  • Pólland
  • Portúgal
  • Púertó Ríkó
  • Katar
  • Rúmenía
  • Sádi-Arabía
  • Senegal
  • Serbía
  • Singapúr
  • Slóvakía
  • Slóvenía
  • Suður-Afríka
  • Suður-Kórea
  • Spánn
  • Svíþjóð
  • Sviss
  • Taívan
  • Taíland
  • Tyrkland
  • Turks- og Caicoseyjar
  • Úganda
  • Sameinuðu arabísku furstadæmin
  • Bretland
  • Bandaríkin
  • Úrúgvæ
  • Bandarísku Jómfrúaeyjar
  • Víetnam

Reglur SúperTakk

Eins og gildir um allt á YouTube þarf að fylgja reglum netsamfélagsins þegar þú sendir ummæli með SúperTakk. Ef ummælum sem voru birt með SúperTakk er eytt, breytt, eða þau fjarlægð færðu ekki endurgreitt. Ef SúperTakk ummælum er breytt og þau fjarlægð vegna brota á reglum okkar mun YouTube gefa okkar hluta teknanna til góðgerðarmála.
Þú þarft líka að fylgja öllum gildandi lögum eins og krafist er í þjónustuskilmálum YouTube. Hafðu í huga að SúperTakk er ekki verkfæri fyrir hópsöfnun eða fjárframlög. Peningur sem þú eyðir í fyrir SúperTakk gæti verið meðhöndlaður misjafnlega eftir því hvaða lög gilda um þig og virkni þína. Þú berð ábyrgð á því að skilja og fylgja að fullu öllum gildandi lögum – þar á meðal um hvort þú getur keypt SúperTakk.

Tekjur höfunda af SúperTakk

Höfundar fá 70% tekna af SúperTakk sem Google viðurkennir eftir innheimtu á staðbundnum söluskatti og viðeigandi gjöldum App Store fyrir iOS. YouTube greiðir nú allan færslukostnað, þar á meðal kreditkortagjöld.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
17711304841966063406
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
59
false
false