Til að finna prófílspjald einhvers annars þarf að ýta á prófílmyndina sem birtist við hliðina á ummælum við vídeó.
Í prófílspjaldinu er hægt að fá meiri upplýsingar sem eru þegar opinberar á YouTube. Á prófílspjaldinu gætu verið eftirfarandi upplýsingar:
- Grunnupplýsingar um rás
- Nýjustu ummælin sem viðkomandi hefur sett inn á rásinni sem þú horfir á
- Áskriftir notandans ef hann hefur valið að gera þær opinberar
Hafðu umsjón með persónuverndarstillingum
Ef þú deilir upplýsingum með samfélagi YouTube, til dæmis með því að gera áskriftir þínar opinberar, geturðu hjálpað öðrum að uppgötva nýtt efni. Þú getur alltaf skoðað eða breytt persónuverndarstillingum fyrir eftirfarandi upplýsingar, sem gætu komið fram með ummælum frá þér:
Það er mikilvægt að allir finni til öryggis og verndar á YouTube. Farðu eftir þessum leiðbeiningum til að tilkynna rás til að tilkynna misnotkun annars ummælanda.