Mælingar á helstu augnablikum fyrir áhorfendaheldni

Skýrslan yfir helstu augnablik fyrir áhorfendaheldni útskýrir hversu vel ólík augnablik í vídeóinu héldu athygli áhorfenda. Þessi skýrsla veitir innsýn í þá hluta vídeósins sem virka vel og hvar er hægt að gera betur. Athugaðu að yfirleitt tekur úrvinnsla gagna um áhorfendaheldni 1–2 daga.

Athugaðu: Skýrslan um áhorfendaheldni er eingöngu tiltæk fyrir vídeó í YouTube-greiningu.

Sjá helstu augnablik fyrir áhorfendaheldni

Tölva AndroidiPhone og iPad
  1. Skráðu þig inn í YouTube Studio.
  2. Veldu Efni úr vinstri valmyndinni.
  3. Veldu Greining við vídeóið sem þú vilt skoða.
  4. Veldu flipann Yfirlit eða Virkni og leitaðu að skýrslunni um áhorfendaheldni. Þú getur smellt á SJÁ MEIRA til að bera vídeóið þitt saman við önnur vídeó á YouTube af svipaðri lengd.
  5. Fyrir neðan „Hlutar“ skaltu velja áhorfendahóp í fellilistanum til að skoða þá gerð.

Skilningur á helstu augnablikum fyrir áhorfendaheldni

Það eru 4 gerðir augnablika sem gætu verið merkt í helstu augnablikum í skýrslunni um áhorfendaheldni. Þú getur líka notað dæmigerða heldni til að bera saman 10 síðustu vídeóin þín sem eru af svipaðri lengd.

Þegar línan í myndritinu er flöt þýðir það að áhorfendur horfa á þann hluta vídeósins frá byrjun til enda.
Hæg minnkun þýðir að áhugi áhorfenda minnkar með tímanum. Áhorf á vídeó á YouTube lækkar yfirleitt smám saman með spilunartímanum.
Toppar myndast þegar fleiri horfa, horfa aftur eða deila hlutum af vídeóinu.
Dýfur þýða að áhorfendur hætta að horfa eða sleppa ákveðnum hluta af vídeóinu.
Athugaðu: Vídeóið þitt er ekki endilega með öll þessi augnablik, þau eru eingöngu merkt ef þau greinast í vídeói. Vídeóið ætti líka að vera að minnsta kosti 60 sekúndna langt og vera með að minnsta kosti 100 áhorf.

Lögun línuritsins fyrir áhorfendaheldni getur sagt þér hvaða hlutar í vídeói eru áhugaverðastir og minnst áhugaverðir fyrir áhorfendur.

Skoða áhorfendaheldni eftir tegund búta

Athugaðu: Þú gætir þurft að virkja Ítarlegar stillingar til að fá aðgang að vissum upplýsingum. Kynntu þér hvernig þú opnar á ítareiginleika.

Skýrslan yfir mismunandi hluta áhorfendaheldni gera þér kleift að sjá hvernig mismunandi áhorfendur bregðast við vídeóunum þínum. Þú getur borið saman nýja og eldri áhorfendur, áskrifendur og þá sem ekki eru með aðild, og ef þú birtir auglýsingar geturðu sundurliðað áhorfendur sem bregðast við efninu þínu eftir því hvort þeir koma frá venjulegri eða greiddri umferð. Þú getur líka séð umferð frá vídeóauglýsingum sem hægt er að sleppa og umferð frá myndrænum auglýsingum. Þú getur smellt á SJÁ MEIRA til að sjá þessar skýrslur.

Skoða ítarlega virkni fyrir áhorfendaheldni

Hægt er að nálgast skýrslu yfir ítarlega virkni fyrir áhorfendaheldni sem sýnir heildarfjölda áhorfa á mismunandi hluta vídeós. Þú getur líka notað þessa skýrslu til að sjá hversu margir áhorfendur byrjuðu að horfa og á hvaða tímapunkti þeir hættu að horfa.

Upplýsingarnar um það hvenær áhorfendur byrja og hætta að horfa geturðu síðan nýtt þér til að bæta efni og halda áhuga áhorfenda.

Athugaðu: Heildarfjöldi áhorfa á hluta vídeós er líklegur til að vera stundum meiri en heildarfjöldi áhorfs á vídeóið í heild. Þetta stafar af því að sami áhorfandi gæti horft á hluta vídeósins aftur og aftur.

Mæligildi sem gott er að þekkja

Meðallengd áhorfs Áætluð meðallengd áhorfs í mínútum fyrir valið vídeó og tímabil.
Áhorfstími (klst) Hversu lengi áhorfendur hafa horft á vídeóið þitt.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
8140670704429681074
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
59
false
false
false
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd