Ef þú ert meðlimur YouTube Premium og upplifir vandamál vegna aðildarfríðindanna skaltu skoða þessi algengu vandamál og úrræðaleitarskref. Þú finnur upplýsingar um hvernig hægt er að laga vandamál vegna niðurhals á vídeóum, hvers vegna þú gætir verið að sjá auglýsingar, hvernig hægt er að laga villur (eins og „Hlé gert á spilun“) og fleira.
Skoðaðu þessar greinar til að fá aðstoð:
- Ég get ekki sótt vídeó: Finndu ábendingar um hvernig þú getur sótt vídeó í snjalltækinu.
- Ég get ekki horft á vídeóið sem ég sótti: Gerðu úrræðaleit og skoðaðu hvers vegna ekki er hægt að spila sótt vídeó ónettengt.
- Ég sé auglýsingar í YouTube vídeóum: Skoðaðu hvers vegna þú gætir verið að sjá auglýsingar og hvernig þú getur mögulega leyst vandamálið.
- Bakgrunnsspilun virkar ekki: Fáðu ábendingar um hvernig þú getur lagað vandamál tengd bakgrunnsspilun.
- Ég fæ villuskilaboð: Finndu út hvers vegna þú gætir verið að fá villuskilaboð.
Ábendingar og ráð:
- Ef þú upplifir eitthvert af vandamálunum hér að ofan skaltu íhuga að senda vöruábendingu til YouTube: Veldu prófílmyndina þína > Ábending í YouTube.
- YouTube Premium meðlimir sem skrá sig í iOS-tæki: Til að fá aðgang að YouTube Premium fríðindunum þínum skaltu passa að þú sért skráð(ur) inn á reikninginn á YouTube sem þú notaðir til að kaupa aðildina í iTunes.