Ef Google-reikningurinn þinn hefur að geyma fleiri en eina YouTube-rás gætirðu séð sprettiglugga þar sem þú getur valið rás þegar þú skráir þig inn.
Ef þú vilt alltaf skrá þig beint inn á eina rás geturðu stillt sjálfgefna rás í sprettiglugganum. Veldu þá sem þú vilt nota og merktu við Ekki spyrja mig aftur. Þú getur áfram skipt auðveldlega yfir á aðrar rásir á reikningnum.
Athugaðu: Sjálfgefin rás verður einnig notuð í verkfærum og forritum þriðju aðila (t.d. klippiforritum) sem ekki styðja það að skipta á milli rása. Þegar þú slærð inn skilríkin fyrir Google-reikninginn í þessum verkfærum verður sjálfgefin rás notuð sjálfkrafa.
Breyttu sjálfgefinni rás
Til að breyta sjálfgefinni rás á Google-reikningnum þínum:
- Skráðu þig inn á YouTube með Google-reikningnum þínum í tölvu.
- Skiptu yfir á rásina sem þú vilt gera að sjálfgefinni rás.
- Farðu í ítarlegar reikningsstillingar.
- Undir „Sjálfgefin rás“ skaltu merkja við „Nota þessa rás (rásarheiti) þegar ég skrái mig inn á <email> reikninginn.“
- Smelltu á Vista.