Hvatt til brota á þjónustuskilmálunum
Ef þú birtir efni sem hvetur aðra notendur til að brjóta þjónustuskilmálana kann efnið að verða fjarlægt, reikningurinn þinn sæta refsingu og í vissum tilfellum getur reikningnum verið sagt upp.
Birta efni sem áður var fjarlægt eða efni frá höfundum sem hefur verið lokað á eða þurftu að sæta takmörkunum.
Að birta efni sem áður var fjarlægt vegna brota á þjónustuskilmálum okkar, efni frá höfundum með rásartakmarkanir sem eru í gildi eða efni frá höfundum sem lokað hefur verið á varanlega er talið sniðganga þjónustuskilmála okkar.
Ef þú birtir slíkt efni gæti það verið fjarlægt og YouTube-rásin þín gæti líka fengið refsingu eða verið lokað varanlega. Þetta gæti einnig gilt um aðrar rásir sem þú átt.
Aldurstakmark í vörum Google
Við gætum beðið þig um að staðfesta aldur þinn ef við teljum að þú hafir ekki aldur til að nota YouTube. Þú getur fengið frekari upplýsingar um ferlið hér.