Auglýsingar á YouTube styðja við uppáhaldshöfundana þína og gera milljörðum manna út um allan heim kleift að nota streymisþjónustu. Það er brot á þjónustuskilmálum YouTube að loka á YouTube-auglýsingar. Ef þú notar auglýsingavarnir viljum við biðja þig um að opna fyrir auglýsingar á YouTube eða fá þér YouTube Premium-aðild. Ef þú heldur áfram að nota auglýsingavarnir gætum við lokað á vídeóspilun fyrir þig. Til að komast hjá slíkri truflun skaltu opna fyrir auglýsingar á YouTube eða fá þér YouTube Premium-aðild.
Svona opnarðu fyrir auglýsingar á YouTube
Fylgdu leiðbeiningunum fyrir þá auglýsingavörn sem þú notar.
AdBlock
- Efst í hægra horni vafrans skaltu smella á AdBlock . Lítil tala gæti hulið AdBlock.
- Smelltu á „Don’t run on pages on this site“.
- Í glugganum „Don’t run AdBlock on“ skaltu smella á „Exclude“. AdBlock-táknið gefur nú til kynna að auglýsingar séu leyfðar .
- Endurhladdu YouTube.
Adblock Plus
- Efst í hægra horni vafrans skaltu smella á AdBlock Plus . Lítil tala gæti hulið AdBlock Plus.
- Smelltu á „Power“ svo að það renni til vinstri.
- Smelltu á endurnýjunarhnappinn til að endurhlaða YouTube.
uBlock Origin
- Efst í hægra horni vafrans skaltu smella á uBlock Origin . Lítil tala gæti hulið uBlock Origin.
- Smelltu á „Power“ . Táknið verður nú grátt að lit sem gefur til kynna að ekki sé lengur lokað fyrir auglýsingar á YouTube.
- Til að endurhlaða YouTube skaltu ýta á endurnýja .
Aðrar auglýsingavarnir
- Smelltu á táknið fyrir auglýsingavörnina fyrir vafrann þinn. Hún er yfirleitt staðsett efst í hægra horni vafrans.
- Athugaðu að þú gætir hafa sett upp fleiri en eina auglýsingavörn.
- Fylgdu leiðbeiningunum til að slökkva á auglýsingavörninni fyrir YouTube. Þú gætir þurft að velja valkost eða smella á hnapp.
- Endurhladdu YouTube með því að fylgja leiðbeiningunum eða með því að smella á hnappinn til að „Endurnýja“ eða „Endurhlaða“ á vafranum þínum.
Svona tilkynnirðu um vandamál
Láttu okkur vita ef þú færð skilaboð um að slökkva á auglýsingavörn ef þú ert ekki með neina eða hefur þegar slökkt á henni. Til að tilkynna um vandamálið skaltu smella á Tilkynna um vandamál neðst í vinstra horni skilaboðanna.
Svona stýrirðu auglýsingunum sem birtast á YouTube
Auglýsingarnar sem spilast í YouTube-vídeóunum eða Shorts sem þú horfir á eru sniðnar að því sem þú hefur áhuga á. Nánar um auglýsingar í vídeóum sem þú horfir á. Ef þú vilt horfa á YouTube án auglýsinga en á sama tíma styðja við uppáhaldshöfunduna þína skaltu kynna þér kosti aðildar að YouTube Premium.