Heiti eru leið fyrir þig til að finna og tengjast höfundum á YouTube. Heiti eru einstök og stutt rásareinkenni aðskilin rásarheitum og byrja á „@” merkinu. Til dæmis @youtubecreators.
Allar rásir munu eiga sitt heiti sem hægt er að nota til að finna og eiga samskipti við aðra notendur - bæði höfunda og áhorfendur. Heitið þitt verður sjálfkrafa nýja YouTube-vefslóðin fyrir rásina þína, sem gerir fólki auðvelt að uppgötva þig. Til dæmis youtube.com/@youtubecreators. Þú getur notað þessa vefslóð til að beina fólki á rásina þína þegar það er ekki á YouTube. Hver rás getur aðeins átt eitt heiti.
Þú munt sjá heiti á stöðum eins og í ummælum, merkingum og í Shorts. Heitið þitt mun birtast á fleiri stöðum í framtíðinni. Þú getur líka notað heitið utan YouTube til að kynna rásina þína.
Leiðbeiningar um val á heiti
Heitið þitt verður að fara eftir þessum reglum:
- Innihalda 3-30 stafi
- Innihalda bók- og tölustafi (A-Ö, a-ö, 0-9)
- Heitið getur einnig innihaldið: undirstrik (_), bandstrik (-), punkta (.)
- Líkist ekki vefslóð eða símanúmeri
- Er ekki þegar í notkun
- Fylgir reglum netsamfélags YouTube.
Góð vinnubrögð við val á heiti
Veldu heiti sem lýsir opinberri ímynd þinni á YouTube best. Hafðu í huga að heiti eru ekki há- og lágstafanæm.
Við leyfum ekki:
- Heiti sem innihalda ofbeldisfullt, móðgandi, kynferðislegt eða ruslorðalag.
- Sölu og flutning á heitum
Ef heitið þitt telst brjóta gegn reglum netsamfélagsins mun YouTube afturkalla heitið og búa til nýtt fyrir rásina þína.
Feldu heitið þitt
Ef þú vilt fela heitið þitt geturðu eytt rásinni þinni eða falið hana.
Skoða eða breyta heiti
- Skráðu þig inn í YouTube Studio.
- Í vinstri valmyndinni skaltu velja Sérsnið Grunn upplýsingar.
- Undir Heiti getur þú séð eða breytt vefslóð heitisins
- Ef þú breytir heitinu þínu skaltu smella á BIRTA til að staðfesta það.
Ef heitið sem þú vilt velja er ekki tiltækt er það yfirleitt vegna þess að:
- Önnur rás hefur þegar valið það heiti.
Eða
- Það samræmdist ekki leiðbeiningum okkar um val á heiti.