Vefveiðar eru þegar einhver reynir að plata þig í að deila persónuupplýsingum á netinu.
Hvernig vefveiðar virka
Vefveiðar fara venjulega fram með tölvupósti, auglýsingum eða á vefsvæðum sem líta út eins og vefsvæði sem þú notar vanalega. Til dæmis gætirðu fengið tölvupóst sem virðist vera frá bankanum þínum sem biður þig um að staðfesta reikningsnúmerið þitt.
Upplýsingar sem vefveiðasíður gætu beðið um
- Notendanöfn og aðgangsorð
- Kennitölu
- Bankareikningsnúmer
- PIN-númer
- Greiðslukortanúmer
- Skírnarnafn móður þinnar
- Afmælisdaginn þinn
Tilkynna vefveiðasíður
Tilkynntu vefveiðasíður sem þú finnur með Google leitinniEf þú telur þig hafa fundið vefveiðasíðu skaltu tilkynna vefveiðasíðuna.
Ef þú telur að síða noti vörumerki eða merki Google á óviðeigandi hátt skaltu tilkynna brot á höfundarrétti. Til dæmis gætirðu fundið vefsvæði sem tilheyrir ekki Google en er með merki Google eða Gmail á síðunni.
Ef vefveiðasíða birtist sem keyptur tengill í leitarniðurstöðum skaltu tilkynna síðuna með því að hafa samband við AdWords.
Fáðu frekari upplýsingar um hvernig skal forðast og tilkynna Google svindl.
Fáðu upplýsingar um hvernig skal senda kvörtun til yfirvalda varðandi grunsamlega síðu.
Komist hjá vefveiðum
Vertu varkár hvenær sem þér berast skilaboð frá vefsvæði sem biður um persónuupplýsingar. Ef þú færð slík skilaboð skal ekki veita upplýsingarnar án þess að staðfesta að vefsvæðið sé traust. Ef það er hægt skal opna vefsvæðið í öðrum glugga í stað þess að smella á tengilinn í tölvupóstinum.
Google mun aldrei senda óumbeðin skilaboð sem biðja um aðgangsorð eða aðrar persónuupplýsingar.