Í Google-kortum geturðu skrifað umsagnir fyrir staði sem þú heimsækir. Þú getur einnig skilið eftir upplýsingar eða birt mynda- eða vídeóuppfærslur um stað; eins og hvort hann sé hljóðlátur og rómantískur eða hvort verið sé að gera hann upp.
Mikilvægt: Til að halda aðilum sem brjóta gegn reglum utan Google-korta höfum við umsjón með umsögnum notenda og tengdu efni. Öll brot sem við finnum geta leitt til yfirferðar og fjarlægingar.
Kynntu þér reglur Google-korta um efni sem notendur búa til og kynntu þér takmarkanir og bönn varðandi efni og atferli.
Um upplýsingar til almennings
Allar umsagnir eru opinberar og allir geta séð það sem þú bætir við. Þú getur ekki bætt við nafnlausri umsögn.
Hér eru meiri upplýsingar sem aðrir geta fundið þegar þú skrifar umsögn:
- Nafn þitt á síðunni Um mig.
- Aðrar myndir og vídeó sem þú bættir við Google-kort og upplýsingar um staðsetningu sem fylgja með.
- Umsagnir sem þú skrifaðir á Google-kort.
Ábending: Ef þú ert leiðsögumaður þá geturðu fengið stig þegar þú bætir myndum og vídeóum við Google-kort. Kynntu þér hvernig á að leggja fram hágæðaumsagnir og -myndir.
Bættu við einkunn eða umsögn
Þú getur bætt við einkunnum og umsögnum til að deila upplifun þinni eða hjálpa öðrum að velja og taka upplýstari ákvarðanir.
Áður en þú bætir við einkunn eða umsögn skaltu ganga úr skugga um að fylgja reglum um efni. Einkunnir og umsagnir verða hugsanlega fjarlægðar af síðunni og í flestum tilfellum er efnið fjarlægt vegna brota gegn reglum, t.d. reglum um ruslefni og óviðeigandi efni.
Umsagnir sem eru fjarlægðar vegna brota gegn reglum eru ekki settar inn aftur. Þessum fjarlægingarúrræðum er ætlað að tryggja að umsagnir í þjónustum Google séu viðeigandi, gagnlegar og traustar. Nánar um bannað og takmarkað efni í umsögnum.
- Skráðu þig inn á Google-kort í tölvunni.
- Leitaðu að stað.
- Vinstra megin skaltu fletta og smella á Skrifa umsögn.
- Smelltu á stjörnurnar til að gefa stað einkunn. Einnig er hægt að skrifa umsögn.
Umsögnin er sýnileg í Google-kortum þar til þú fjarlægir hana. Eftir að umsögnin hefur verið birt geturðu breytt henni eða breytt einkunn og meðfylgjandi myndum.
Finndu og deildu umsögnum
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Ýttu á valmyndina
efst til vinstri.
- smella á Þín framlög.
- Til að finna staði sem þú hefur gefið umsögn skaltu smelltu á Umsagnir.
- Til að finna tillögur að stöðum til að gefa umsögn skaltu smelltu á Senda inn framlag.
- Ýttu á „Deila“
neðst í umsögninni til að deila.
Breyttu eða eyddu umsögn
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Ýttu á valmyndina
efst til vinstri.
- Smelltu á Þín framlög
Umsagnir.
- Við hliðina á umsögninni sem þú vilt breyta eða eyða skaltu smella á „Meira“
.
- Veldu Breyta umsögn eða Eyða umsögn og fylgdu skrefunum á skjánum.
Ábending: Ef þú breytir umsögn frá þér verður dagsetning síðustu breytingar skráð sem birtingardagsetning færslu.
Lesa og bregðast við umsögnum annarra
Lestu umsagnir annarra
Einkunnir og umsagnir sem þú sérð í Google-kortum eru frá öðrum notendum.
Ábending: Dagsetning umsagnar er dagsetningin þegar hún var birt.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Leitaðu að stað.
- Einkunn staðar má finna undir nafni hans.
- Til að lesa umsagnir skaltu smella á umsagnafjöldann hægra megin við einkunnina.
Til að lesa umsagnir á öðru tungumáli.
- Opnaðu tungumálastillingar Google-reikningsins.
- Smelltu á „Breyta“
hægra megin og veldu tungumál.
-
Endurhladdu Google-kortum og skoðaðu umsögnina aftur.
Svaraðu umsögn um fyrirtækið þitt
Þegar þú opnar fyrirtækjaprófílinn þinn í Google-kortum í tölvunni geturðu svarað umsögnum.
Ábending: Til að svara umsögnum þarftu að staðfesta fyrirtækjaprófílinn þinn.
Til að svara umsögnum frá fyrirtækjaprófílnum þínum í Google-kortum.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Sláðu inn heiti fyrirtækisins. Smelltu svo á „Leit“
eða ýttu á Enter.
- Flettu að „Umsagnir“ á fyrirtækjaprófílnum.
- Smelltu á Svara til að svara umsögn.
Merkja umsögn sem gagnlega
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Leitaðu að stað.
- Fyrir neðan heiti staðarins skaltu smella á fjölda umsagna.
- Til að merkja umsögn sem gagnlega skaltu smella á Gagnleg
. Höfundurinn fær tilkynningu en nafn þitt og upplýsingar um þig sjást ekki. Heildarfjöldi gagnlegra atkvæða er birtur.
Ábendingar:
- Til að fjarlægja atkvæðið ýtirðu aftur á táknið.
- Ef umsögnin er ólögleg eða brýtur gegn reglum Google geturðu tilkynnt hana.
- Allir geta brugðist við efninu þínu.
Tilkynna umsögn
Þú getur ekki haft samband við aðila sem skrifar óviðeigandi umsögn en þú getur beðið Google um að fjarlægja hana. Umsagnir eru fjarlægðar ef aðrir merkja þær sem rangar eða ef þær samræmast ekki reglum Google um umsagnir.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Finndu umsögnina sem brýtur gegn reglum Google um umsagnir.
- Við hliðina á umsögninni skaltu smella á „Meira“
Tilkynna sem óviðeigandi.
- Veldu ástæðu þess að þú vilt tilkynna umsögnina.
Ábending: Ef þú ert eigandi fyrirtækis geturðu óskað eftir að umsagnir verði fjarlægðar af fyrirtækjaprófílnum þínum á Google