Sláðu inn GPS-hnit breiddar- og lengdargráðu til að finna stað í Google-kortum. Þú getur einnig fundið hnit staða sem þú hefur áður skoðað.
Auk breiddar- og lengdargráðu geturðu notað Plus Codes til að deila stað.
Sláðu inn hnit til að finna stað í Google-kortum
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Sláðu inn hnit í leitarreitinn.
Dæmi um snið sem virka:- Tugabrotsgráður (TBG): 41.40338, 2.17403
- Gráður, mínútur og sekúndur (GMS): 41°24'12.2"N 2°10'26.5"E
- Gráður og tugabrotsmínútur (GTBM): 41 24.2028, 2 10.4418
Fáðu hnit staðar í Google-kortum
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Hægrismelltu á staðinn eða svæðið á kortinu.
- Sprettigluggi mun opnast. Þú finnur breiddar- og lengdargráðuna í tugabrotum efst.
- Smelltu á breiddar- og lengdargráðuna til að afrita hnitin.
Sníddu hnitin þín í Google-kortum
Sníddu hnitin þín þannig að þau virki í Google-kortum:
- Notaðu tugabrotsgráður á eftirfarandi sniði:
- Rétt: 41.40338, 2.17403
- Rangt: 41,40338, 2,17403
- Sláðu fyrst inn hnit breiddargráðunnar og síðan hnit lengdargráðunnar.
- Gakktu úr skugga um að fyrsti tölustafurinn í hnitum breiddargráðunnar sé á milli -90 og 90.
- Gakktu úr skugga um að fyrsti tölustafurinn í hnitum lengdargráðunnar sé á milli -180 og 180.