You can publicly add or edit addresses in Maps. Add mailing addresses, fix where packages would be delivered, or adjust pin locations.
Lagfærðu heimilisfang
Mikilvægt:
Fyrirtæki/stofnanir eða stjórnvöld geta lagfært mörg heimilisföng á Google-kortum með kerfinu „Meðhöfundar Google-korta“. Viðkomandi fyrirtæki/stofnanir eða stjórnvöld verða að standast kröfur okkar um samstarfsaðila og efni til að geta gert það.
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Leitaðu að heimilisfangi.
- Smelltu á Leggja til breytingu
Röng staðsetning prjóns eða rangt heimilisfang.
- Færðu inn upplýsingar um heimilisfangið.
- Smelltu á Senda.
Ábending: Til að bæta við heimilisfangi fyrir veg sem er ekki á kortinu skaltu fyrst bæta við veginum.
Bættu nýju heimilisfangi við
- Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
- Smelltu á Valmynd
.
- Neðst smellirðu á Breyta kortinu
Röng staðsetning prjóns eða rangt heimilisfang.
- Færðu og miðjaðu kortið yfir heimilisfanginu sem þú vilt bæta við.
- Færðu inn upplýsingar um heimilisfangið.
- Smelltu á Senda.
Til að laga mörg heimilisföng: Þú verður að bæta við hverju heimilisfangi fyrir sig með ofangreindum skrefum.
Bættu einkamerki við
Þú getur bætt einkamerki við staði á kortinu þínu. Þegar þú lagfærir heimilisfang verður breytingin sýnileg almenningi. En enginn sér þín einkamerki nema þú. Merktir staðir birtast á kortinu þínu, í leitartillögum og í „Vistað“ .
Gera aðrar breytingar
Bættu við stað eða byggingu sem vantar
Þú getur einnig bætt við stöðum sem vantar, s.s. kennileitum, kaffihúsum eða öðrum staðbundum fyrirtækjum. Kynntu þér hvernig þú bætir stað sem vantar við kortið.