YouTube Premium- og YouTube Music Premium-áskrifendur geta gert hlé, haldið áfram, eða sagt upp hvenær sem er á greiðslutímabilinu.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að skoða og stjórna aðild þinni. Fylgdu síðan næstu skrefum í greininni til að gera hlé á, eða halda áfram með YouTube Premium- eða YouTube Music Premium-aðildinni.
Athugaðu: Ekki er hægt að gera hlé á ársaðildum. Notendur sem skrá sig í gjaldskylda aðild og skuldfærslu í gegnum Apple geta ekki gert hlé á og virkjað aftur aðild.
Hlé gert á aðild
- Farðu á youtube.com/paid_memberships.
- Smelltu á Stjórna aðild.
- Smelltu á Óvirkja.
- Smelltu á Gera hlé í staðinn.
- Notaðu sleðann til að velja hversu margra mánaða hlé þú vilt gera á aðildinni og ýttu svo á Gera hlé á aðild.
Þegar þú gerir hlé á aðild:
- Þú getur valið lengd hlés, einn til sex mánuðir.
- Hlé verður gert á aðild þinni eftir lok núverandi greiðslutímabils.
- Á meðan aðildin er í hléi munt þú (og aðrir fjölskyldumeðlimir í áætluninni) ekki hafa aðgang að neinum YouTube Premium- eða YouTube Music Premium-fríðindum.
- Þú getur sagt upp aðildinni hvenær sem er meðan á hléinu stendur.
- Ef þú ert með YouTube Premium-áskrift verður öllum vídeóum eða tónlist sem þú hefur hlaðið niður haldið eftir. Þú munt ekki hafa aðgang að þeim fyrr en þú heldur aðildinni áfram.
- Ef þú ert með YouTube Music Premium-áskrift verður allri tónlist sem þú hefur hlaðið niður haldið eftir. Þú munt ekki hafa aðgang að henni fyrr en þú heldur aðildinni áfram.
- Þegar hléinu lýkur verður greiðsla fyrir þjónustu næsta mánaðar skuldfærð sjálfvirkt á venjulegu verði. Ef verðið breyttist á meðan þú gerðir hlé á aðild verður gamla verðið fyrst skuldfært einu sinni áður en skipt er yfir í nýja verðið. Við sendum þér tölvupóst í það minnsta 30 dögum fyrir verðhækkun í þínu landi/svæði.
- Þú getur stöðvað hléið og haldið áfram með aðild hvenær sem er fyrir áætlaða upphafsdagsetningu með því að fara á YouTube.
- Farðu á youtube.com/paid_memberships.
- Smelltu á Stjórna aðild.
- Smelltu á Halda áfram.
- Smelltu aftur á Halda áfram .
Ef þú hefur fengið YouTube Premium í gegnum áskrift að Pixel Pass getur þú fengið frekari upplýsingar um hvernig þú getur stjórnað reikningnum þínum hér
Frá og með 2022 verða nýir YouTube Premium- og Music Premium-áskrifendur sem skráðu sig á Android gjaldfærðir í gegnum Google Play. Þessi breyting hefur ekki áhrif á núverandi áskrifendur. Kíktu á payments.google.com til að sjá nýlegar skuldfærslur og sjá hvernig þú ert rukkuð/rukkaður. Til að biðja um endurgreiðslu vegna Google Play-kaupa, skaltu fylgja leiðbeiningunum hér.