Fyrstu skrefin með YouTube Kids í sjónvarpinu

YouTube Kids is moving: In July, the YouTube Kids app icon on your TV will be going away. But, you can still use YouTube Kids on your TV by going to your child’s profile in the YouTube app. 

To get started using this new experience, download the YouTube app on your smart TV, streaming device, or game console. Learn more about entering YouTube Kids through the YouTube app

Þú kemst í YouTube Kids með því að fara í prófíl barnsins þíns í YouTube-forritinu í snjallsjónvarpi, streymistæki eða leikjatölvu.

Byrja að nota YouTube Kids í YouTube-forritinu í sjónvarpinu

Horfa innskráð(ur)

Það fylgja því margir kostir að nota YouTube Kids innskráð(ur), þar sem þú getur þá sérsniðið upplifun barnsins og sett á barnalæsingu. Þótt þú skráir þig inn á YouTube á öðru snjallsjónvarpi, streymistæki eða leikjatölvu er sami YouTube Kids-prófíll barnsins reiðubúinn til notkunar. 

Til að hefjast handa skaltu sækja YouTube-forritið og skrá þig inn með sama reikningi og þú notaðir til að setja upp YouTube Kids-prófíl barnsins. Svo:

  1. Opnaðu YouTube-forritið í snjallsjónvarpi, streymistæki eða leikjatölvu.
  2. Ef forritið opnast á skjánum „Hver er að horfa?“ skaltu velja prófíl barnsins til að fara í YouTube Kids.
  3. Ef forritið opnast skráð inn á reikning:
    1. Farðu í vinstri valmyndina.
    2. Veldu prófílmyndina þína til að opna reikningssíðuna.
    3. Veldu reikning barnsins til að skipta yfir í YouTube Kids.
Athugaðu: Ef þú velur reikning sem er bæði YouTube-reikningur undir eftirliti og uppsettur fyrir YouTube Kids mun barnið fá upplifun með eftirliti.

Ef einn valkosturinn er YouTube Kids-prófíll sem þú notar ekki lengur geturðu eytt honum úr öllum tækjum.

Horfa útskráð(ur) 

Þegar þú hefur sótt YouTube-forritið getur barnið horft á YouTube Kids útskráð. Til að hefjast handa: 

  1. Opnaðu YouTube-forritið í snjallsjónvarpi, streymistæki eða leikjatölvu.
  2. Farðu í vinstri valmyndina.
  3. Veldu prófílmyndina til að opna reikningssíðuna.
  4. Veldu Setja upp YouTube Kid.
  5. Veldu Setja upp gestareikning.
  6. Fylgdu skrefunum á skjánum til að búa til YouTube Kids-prófíl sem þú getur notað án þess að skrá þig inn.

Að þessu loknu birtist YouTube Kids-prófíll á reikningssíðunni og á skjánum „Hver er að horfa“. Þegar þú velur þann prófíl ferðu í YouTube Kids. 

Þú getur hvenær sem er fjarlægt YouTube-gestaprófíl:

  1. Opnaðu YouTube-forritið í snjallsjónvarpi, streymistæki eða leikjatölvu.
  2. Farðu í vinstri valmyndina.
  3. Veldu prófílmyndina til að opna reikningssíðuna.
  4. Veldu reikningsstjórnunarhnappinn  fyrir neðan YouTube Kids-prófílinn.
  5. Veldu Fjarlægja úr þessu tæki.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
3007088088028923699
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
false
false