YouTube Kids-prófíll í samanburði við Google-reikning fyrir krakka

YouTube Kids-prófíll

Hvað er YouTube Kids-prófíll?

YouTube Kids-prófíll er prófíll sem tilheyrir Google-reikningi foreldris. Prófílar eru aðeins tiltækir þegar foreldri skráir sig inn í YouTube Kids með Google-reikningi sínum. Þegar prófíllinn er notaður hefur leitar- og áhorfsferill barnsins ekki áhrif á leitar- eða áhorfsferil foreldris eða tillögur í annarri þjónustu Google.

Hvenær ætti ég að nota þetta?

Prófílar virka bara í YouTube Kids og því er mælt með að þú búir til prófíl ef barnið þitt notar bara YouTube Kids. Ef barnið þitt notar fleiri en eina þjónustu Google er mælt með að þú búir til Google reikning fyrir krakka yngri en þrettán ára (eða viðeigandi aldur í þínu landi) sem er stjórnað með Family Link.
Athugaðu að prófílar og Google reikningar fyrir krakka eru einungis í boði í sumum löndum.

Google reikningur fyrir krakka yngri en þrettán ára

Hvað er Google reikningur fyrir krakka?

Google reikningur fyrir krakka er Google reikningur sem þú (foreldrið) býrð til eða hefur umsjón með fyrir hönd krakka sem er yngri en þrettán ára (eða viðeigandi aldur í þínu landi) í gegnum Family Link.

Hvenær ætti ég að nota þetta?

Ef þú vilt að barnið þitt hafi aðgang að ýmsum öðrum vörum Google en YouTube Kids, til dæmis Leit, Chrome og Gmail, geturðu búið til Google reikning fyrir það.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
18110245265376357842
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
false
false