YouTube Kids-prófíll búinn til

Í YouTube Kids geta foreldrar sem hafa skráð sig inn búið til sérstakan prófíl fyrir hvert barn á heimilinu. Hver prófíll er með sínar eigin áhorfsstillingar og tillögur þannig að hægt er að sníða efni að því sem hverju og einu barni hentar í YouTube Kids forritinu.

Prófílarnir eru tiltækir í hvaða tæki sem er þar sem foreldri hefur skráð sig inn og YouTube Kids forritið er uppsett. Nánar.

Búa til prófíl

Einungis er hægt að fara í prófíla fyrir krakka í YouTube Kids-forritinu og einungis þegar foreldri hefur skráð sig inn. Þú getur búið til allt að 8 prófíla fyrir hvern reikning.

YouTube Kids notað í fyrsta sinn

Ef þú velur að skrá þig inn

Ef þú velur að skrá þig inn í YouTube Kids-forritið færðu aðgang að fleiri eiginleikum og barnalæsingum. Til að hefjast handa:

  1. Ef þú ert nú þegar með reikning í tækinu og vilt skrá þig inn með þeim reikningi skaltu velja hann og ýta á Skrá inn. Ef þú ert ekki með Google-reikning skaltu bæta honum við eða búa til Google-reikning með því að fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú hefur bætt reikningnum við skaltu ýta á Skrá inn.
Gakktu úr skugga um að þú hafir staðfest fæðingardaginn þinn á Google-reikningnum þínum til að styrkja að þú sérð eldri en 18 ára. Ef þú hefur ekki staðfest fæðingardaginn þinn geturðu ekki skráð þig inn á YouTube Kids með Google-reikningnum þínum. 
  1. Lestu upplýsingarnar um samþykki foreldris fyrir YouTube Kids. Ýttu á Lokið ef þú vilt samþykkja og sláðu svo inn aðgangsorðið.
  2. Settu upp prófíl fyrir barnið. Reynt verður að sérsníða forritið að aldri barnsins þíns. Þegar þú gefur upp fæðingarmánuð mun forritið nota upplýsingarnar til að sníða upplifun barnsins að aldri þess. Einungis þú og barnið getið séð þessar upplýsingar.
  3. Veldu efnisstillingu fyrir barnið þitt. Þú hefur eftirfarandi valmöguleika: 
    • Leikskólaaldur (4 ára og yngri)
    • Yngri (5 til 8 ára)
    • Eldri (9 til 12 ára)
    • Samþykkja efni sjálf(ur)
  4. Barnið þitt getur nú notað YouTube Kids. Veldu prófíl fyrir barnið sem mun nota forritið. Þú getur farið aftur í Stillingar hvenær sem er og breytt barnalæsingum.

Ef þú velur að halda áfram án þess að skrá þig inn

  1. Reiknaðu dæmið til að staðfesta að þú sért fullorðin(n). 
  2. Veldu efnisstillingu sem hentar þér. Valið er mikilvægt þar sem það hefur áhrif á hvaða vídeó eru tiltæk í forritinu. Þú hefur eftirfarandi valmöguleika:
    • Leikskólaaldur (4 ára og yngri)
    • Yngri (5 til 8 ára)
    • Eldri (9 til 12 ára)
    • Samþykkja efni sjálf(ur). Ef þú velur Samþykkja efni sjálf(ur) verður þú beðin(n) um að skrá þig inn.
  3. Lestu tilkynningu til foreldra. Ef þú samþykkir skaltu velja „Ég samþykki“.
  4. Barnið þitt getur nú notað YouTube Kids. Þú getur farið aftur í Stillingar hvenær sem er og breytt barnalæsingum eða skráð þig inn og fengið aðgang að enn fleiri valkostum og stillingum.

Ekki enn skráð(ur) inn í YouTube Kids (eða skráð(ur) inn í YouTube Kids en prófíll hefur ekki verið búinn til enn sem komið er)

  1. Opnaðu YouTube Kids-forritið, ýttu svo á prófílval í horninu efst til vinstri.
  2. Gluggi mun opnast þar sem beðið er um að þú búir til prófíl. Ýttu á Hefjast handa.
  3. Veldu Google-reikning sem notaður verður til að búa til prófíl. Þú gætir fengið beiðni um að staðfesta fæðingardaginn þinn á Google-reikningnum til að styrkja að þú sért fullorðin(n).
  4. Ef skráð samþykki liggur ekki fyrir á reikningnum muntu sjá eyðublað fyrir samþykki foreldris. Lestu það og ýttu síðan á Lokið ef þú vilt samþykkja og sláðu svo inn aðgangsorðið. Annars, ef samþykki hefur verið skráð á reikningnum, skaltu slá inn aðgangsorðið til að staðfesta auðkenni þitt.
  5. Sláðu inn fornafn (eða gælunafn) barnsins þíns, aldur þess og fæðingarmánuð (valfrjálst) þess til að búa til prófíl fyrir það. Einungis þú og barnið getið séð þessar upplýsingar.
  6. Næst skaltu horfa á stutt vídeó eða lesa um hvernig vídeó í forritinu eru valin og hvaða kostir eru í boði fyrir þig sem foreldri.
  7. Veldu efnisstillingu fyrir barnið þitt. Valið er mikilvægt þar sem það hefur áhrif á hvaða vídeó standa barninu til boða í forritinu. Þú hefur eftirfarandi valmöguleika:
    • Leikskólaaldur (4 ára og yngri)
    • Yngri (5 til 8 ára)
    • Eldri (9 til 12 ára)
    • Samþykkja efni sjálf(ur)
  8. Þá hefur prófill fyrir barnið verið búinn til.

    • Ef þú vilt búa til annan prófíl skaltu ýta á Bæta við .
    • Til að halda áfram skaltu ýta á hægri örina .
Athugaðu: Prófílum sem einungis hafa verið búnir til að hluta verður eytt eftir 3 daga.

Veldu efnisstillingu

Þú getur valið um eftirfarandi efnisstillingar fyrir barnið:

  • Ef kveikt er á efnisstillingunni Leikskólaaldur (ætluð 4 ára og yngri) geta krakkar horft á vídeó sem hvetja til sköpunar, leikja, náms og könnunar. Leitarniðurstöður eru þá takmarkaðar við efni fyrir börn sem eru 4 ára eða yngri. Kerfi okkar vinna ötullega að því að útiloka efni sem hentar ekki krökkum á leikskólaaldri en við getum ekki farið handvirkt yfir öll vídeó. Ef þú finnur óviðeigandi efni sem okkur hefur yfirsést geturðu lokað á það eða tilkynnt efnið og við munum þá skoða það eins fljótt og kostur er. Nánar.
  • Efnisstillingin Yngri (fyrir 5 til 8 ára börn) gerir krökkum kleift að finna og skoða lög, teiknimyndir, handverksvídeó og fleira. Kerfi okkar vinna ötullega að því að útiloka efni sem hentar ekki ungum börnum en starfsfólk okkar getur ekki skoðað öll vídeó. Þú gætir fundið óviðeigandi efni sem okkur hefur yfirsést. Ef kveikt er á þessari stillingu verða leitarniðurstöður takmarkaðar við efni fyrir börn sem eru 8 ára og yngri. Ef þú vilt slökkva á leit geturðu gert það með því að fylgja leiðbeiningum sem finna má í foreldrastillingum. Nánar.
  • Efnisstillingin Eldri (fyrir börn á aldrinum 9 til 12 ára) gerir krökkum kleift að leita að og skoða fleiri tónlistarvídeó, tölvuleikjaefni, efni um vísindi og fleira. Kerfi okkar reyna að útiloka efni sem ætlað er fullorðnum en við getum ekki farið handvirkt yfir öll vídeó. Þú gætir fundið óviðeigandi efni sem okkur hefur yfirsést. Ef kveikt er á þessari efnisstillingu verða leitarniðurstöður takmarkaðar við efni fyrir börn sem eru 12 ára og yngri. Ef þú vilt geturðu slökkt á Leit fyrir barnið. Nánar.
  • Ef þú kveikir á stillingunni Samþykkja efni sjálf(ur) getur barnið eingöngu horft á vídeó, rásir og söfn sem þú hefur valið. Söfn eru vídeó og rásir sem flokkuð eru saman eftir efni eins og til dæmis vísindum og tónlist. Þegar kveikt er á þessari stillingu mun barnið þitt ekki geta leitað að efni.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
14092628044104424591
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
false
false