Þú getur skoðað áhorfsferil barnsins fyrir YouTube Kids í Horfa aftur.
Í snjalltæki eða spjaldtölvu barnsins:
- Efst á heimaskjánum skaltu ýta á Horfa aftur .
Í tölvu barnsins:
- Veldu prófílmynd barnsins í efra horni skjásins til að sjá Horfa aftur-vídeóin.
Athugaðu: Eingöngu vídeó sem var horft á í YouTube Kids í tækinu munu birtast í Horfa aftur.
Ef þú finnur ekki vídeó sem áður hefur verið horft á getur verið að birtingarstillingu þess hafi verið breytt í lokað, vídeóinu eytt eða það fjarlægt af YouTube Kids.
Hægt er að hreinsa Horfa aftur með því að hreinsa ferilinn eða slökkva á leit í barnalæsingum. Ef þú gerir hlé á áhorfsferli í barnalæsingum munu vídeó sem var horft á þegar ferillinn var óvirkur ekki birtast í Horfa aftur.