Nánar um hvernig YouTube virkar fyrir þig

Við vitum að þú verð miklum tíma og orku í að búa til efni fyrir YouTube, hvort sem það er áhugamál þitt eða í viðskiptaskyni. Það er mikilvægt fyrir þig að vita hvernig fólk finnur efnið þitt og hvaða árangri það skilar. Sem höfundur ertu þungamiðjan í samfélagi okkar og það er okkur kappsmál að halda uppi góðum samskiptum við þig og vera opin með upplýsingar. Við kappkostum að styðja þig til að ná árangri. Þess vegna höfum við safnað saman frábærum upplýsingum sem útskýra:

Efnið þitt á YouTube

YouTube-leit

YouTube-leit setur nokkur atriði í forgang til að veita bestu leitarniðurstöðurnar, þar á meðal vægi, virkni og gæði. Við skoðum fjölmarga þætti til að meta vægi, til dæmis hversu vel heiti, merki, lýsing og efni vídeós passa við leitarfyrirspurn áhorfandans. Merki um virkni eru mikilvæg leið til að ákvarða vægi og við notum samansafn af merkjum um virkni frá notendum. Til dæmis kunnum við að skoða áhorfstíma á tiltekið vídeó fyrir tiltekna fyrirspurn til að ákvarða hvort vídeóið teljist hafa vægi fyrir fyrirspurnina. Hvað varðar gæðin, þá eru kerfin hönnuð til að greina merki sem hjálpa við að ákvarða hvaða rásir sýna fram á sérkunnáttu í tilteknu umfjöllunarefni, þekkingu og áreiðanleika. YouTube tekur ekki við greiðslum í skiptum fyrir betri staðsetningu í venjulegum leitarniðurstöðum.

Við notum oft viðbótarþætti fyrir efni á borð við tónlist og afþreyingu, eins og hversu nýtt efnið er eða vinsældir þess, til að hjálpa kerfunum að tengja notendur við gæðaefni sem þeir hafa gaman af. Á öðrum sviðum þar sem trúverðugleiki lykilatriði, til dæmis þegar um er að ræða fréttir, stjórnmál, læknisfræðilegar eða vísindalegar upplýsingar, kappkostum við að tryggja að leitarkerfin setji fyrsta flokks áreiðanlegt efni frá traustum heimildum í forgang.

Opinber spjöld auðvelda notendum líka að uppgötva efni með því að sýna sérstaklega opinbert efni í YouTube-leit. Þessi spjöld innihalda opinber vídeó og færslur frá vinsælum rásum, til dæmis frá vinsælustu YouTube-höfundunum, stjörnum og tónlistarfólki. Einnig birtast vídeó og færslur frá efni sem tengist íþróttaliðum, kvikmyndum og sjónvarpi, tónlist og sérstökum viðburðum. Þessi spjöld eru búin til sjálfkrafa og ekki er hægt að sérsníða þau.

Markmið okkar er að gefa þér upplýsingar til að hjálpa þér að skilja hvaða þætti við höfum í huga til að bjóða upp á bestu leitarniðurstöðurnar fyrir notendur.

Ítarupplýsingar

Vídeó sem mælt er með

Útgangspunkturinn er að áhorfsvenjur hvers og eins eru einstakar. Síðan bera kerfin okkar saman áhorfsvenjur eins notanda við svipaða notendur. Kerfið notar svo þær upplýsingar til að koma með tillögur að efni sem áhorfandinn gæti haft áhuga á.

Tillögukerfið okkar er í stöðugri þróun og lærir á hverjum degi af þeim rúmlega 80 milljörðum vísbendinga sem safnað er. Helstu vísbendingarnar sem notaðar eru til grundvallar eru:

  • Áhorfsferill: Kerfin skoða hvaða vídeó áhorfendur horfa á á YouTube til að koma með betri tillögur, geta haldið áfram þar sem frá var horfið og fleira.
  • Leitarferill: Kerfin nota leitarorð áhorfenda á YouTube til að hafa áhrif á tillögur í framtíðinni.
  • Áskriftir að rásum: Kerfin nota upplýsingar um hvaða rásir áhorfandinn er áskrifandi að til að koma með tillögur að vídeóum sem gætu verið við hæfi.
  • Læk: Kerfin nota upplýsingar um læk til að reyna að spá fyrir um líkurnar á að áhorfandi hafi áhuga á svipuðum vídeóum í framtíðinni.
  • Diss: Kerfin nota upplýsingar um vídeó sem áhorfandi dissar til að forðast tillögur að svipuðum vídeóum framvegis.
  • Ábendingin „Hef ekki áhuga“ valin: Kerfin nota upplýsingar um hvaða vídeó áhorfendur merkja með „Hef ekki áhuga“ til að forðast að koma með tillögur að svipuðum vídeóum í framtíðinni.
  • Ábendingin „Ekki mæla með rás“ valin: Kerfin túlka ábendingar um að mæla ekki með rás sem merki um að efni rásarinnar sé ekki eitthvað sem áhorfandinn hafði gaman af.
  • Skoðanakannanir: Kerfin nota skoðanakannanir þar sem áhorfendur eru beðnir um að gefa vídeóum sem þeir horfa á einkunn til að fara ekki bara eftir áhorfstíma heldur skilja betur hversu vel áhorfandinn kunni að meta efnið.

Hinir ýmsu eiginleikar YouTube reiða sig mismikið á vissar upplýsingar til að koma með tillögur. Til dæmis notum við það vídeó sem áhorfandi er að horfa á í augnablikinu sem helstu vísbendinguna þegar tillaga er gerð að vídeó til að horfa á næst. Til að koma með tillögur að vídeóum á heimasíðunni reiðum við okkur fyrst og fremst á áhorfsferil áhorfanda. Áhorfendur geta slökkt á og hreinsað áhorfsferil sinn ef þeir vilja ekki sjá tillögur á heimasíðunni sinni. Þeir sem hafa slökkt á áhorfsferlinum sínum á YouTube eða hafa ekki horft á mikið efni, mun áfram sjá leitarstikuna og valmyndina til vinstri.

Takmörkun á útbreiðslu jaðarefnis og skaðlegra villandi upplýsinga

Viðleitni okkar til að vera opin þýðir að til er efni á verkvangnum sem kemst nálægt því að brjóta gegn reglum okkar en fer þó ekki alveg yfir mörkin. Okkur finnst mikilvægt að standa vörð um tjáningarfrelsið en við setjum ströng skilyrði fyrir því hvaða vídeó við sýnum með áberandi hætti í tillögum á heimasíðu YouTube eða á svæðinu „Næst á dagskrá“.

Þess vegna tökum við nú næsta skref og mælum með áreiðanlegum vídeóum um efni á borð við fréttir, stjórnmál og læknisfræðilegar og vísindalegar upplýsingar.

Við reiðum okkur á mannlega matsaðila sem hafa fengið þjálfun í að nota opinberar viðmiðunarreglur sem meta gæði upplýsinga í hverri rás og hverju vídeói. Til að skera úr um það hvort vídeó sé áreiðanlegt taka matsaðilar tillit til þátta svo sem sérfræðiþekkingar og orðspors þess sem talar eða rásarinnar, hvert aðalefni vídeósins er og hvort efnið uppfyllir það sem það lofar eða nær markmiði sínu. Því áreiðanlegra sem vídeó er talið vera, því oftar er mælt með því í tillögum. Við vinnum stöðugt að því að bæta kerfin okkar til að leggja áherslu á efni sem kemur frá áreiðanlegum heimildum svo sem fréttastöðvum og heilsustofnunum.

Ítarupplýsingar

Samband þitt við YouTube

Samningur þinn við YouTube

Öll notkun á þjónustunni heyrir undir þjónustuskilmála YouTube, reglur netsamfélagsins og reglur verkvangsins.

Athugaðu að fleiri reglur gilda þegar þú virkjar vissa eiginleika, til dæmis tekjuöflun, beinstreymi og Shopping. Ekki gleyma að ef þú auglýsir eða kynnir hluti í þjónustunni eða innifelur kostaðar kynningar í efni frá þér þarftu líka að fara eftir reglunum fyrir auglýsendur. Þú getur séð allar reglurnar okkar hvenær sem er með því að leita í hjálparmiðstöðinni.

Samskipti við YouTube

Við höfum það sífellt að markmiði að bæta gagnsæi og samskipti við samstarfsaðila og því er okkur mikilvægt að tilkynna þér um allar breytingar sem við gætum þurft að gera og gætu haft áhrif á þig. Hvort sem þú fæst við tiltekið vandamál, þarft aðstoð við að leysa úr tæknilegum vandamálum eða vilt vita hvernig á að fá sem mest út úr YouTube þá erum við hér til að hjálpa þér. Þú getur haft samband við höfundaþjónustu eða fulltrúa samstarfsaðila. Þú finnur nánari upplýsingar um samskipti okkar við þig hér.

Tekjuöflun á YouTube

Þjónusta YouTube fyrir samstarfsaðila

Við útvíkkum nú þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila (YPP) til fleiri höfunda og gerum það mögulegt að fá aðgang fyrr að eiginleikum Shopping og fjármögnunar frá aðdáendum. Útvíkkuð þjónusta YouTube fyrir samstarfsaðila er í boði fyrir gjaldgenga höfunda í þessum löndum/landsvæðum. Útvíkkunin verður innleidd næstu mánuði til gjaldgengra höfunda í AE, AU, BR, EG, ID, KE, KY, LT, LU, LV, MK, MP, MT, MY, NG, NL, NO, NZ, PF, PG, PH, PT, QA, RO, RS, SE, SG, SI, SK, SN, TC, TH, TR, UG, VI, VN og ZA. Kynntu þér þessa grein til að fá frekari upplýsingar um breytingar á þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila.

Ef þú ert ekki í neinu þeirra landa/landsvæða sem talin eru upp að ofan eru engar breytingar á þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila væntanlegar fyrir þig. Þú getur skoðað þessa grein til að fá yfirlit um YPP, gjaldgengi og innleiðingarupplýsingar sem skipta máli fyrir þig.

Kannaðu gjaldgengi þitt fyrir útvíkkaða þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila. Ef þú uppfyllir ekki skilyrðin enn sem komið er skaltu velja Fá tilkynningu á svæðinu Tekjur í YouTube Studio. Við munum senda þér tölvupóst þegar kemur að þér í útvíkkun YPP-þjónustunnar og þú hefur náð gjaldgengismörkum. 


Ef þú ert þátttakandi í þjónustu YouTube fyrir samstarfsaðila geturðu nýtt þér fjölmargar tekjuöflunarleiðir svo framarlega sem þær eru í boði á þínu svæði og þú uppfyllir skilyrðin. Þú færð þá líka aðgang að höfundaþjónustu og Copyright Match Tool. Þú getur fengið frekari upplýsingar um þjónustuna, hvernig hún virkar og hvernig á að sækja um hér.

Tekjuöflun af YouTube Music-rás

YouTube getur hjálpað þér að ná til fleiri aðdáenda og afla meiri tekna, sama hvort þú ert útgefandi, dreifingaraðili eða sjálfstæður tónlistarmaður. Nánar um hvernig YouTube getur hjálpað þér að afla tekna af tónlistinni þinni í gegnum auglýsingar, áskriftir og aðrar tekjuöflunarleiðir hérna. Þú finnur nánari upplýsingar um kvarðanleg verkfæri og aðferðir til að færa fram tónlistina þína og hafa umsjón með stafrænum réttindum á YouTube hér.

Fjármögnun frá aðdáendum

Súperspjall og Super Stickers eru leiðir til að tengja aðdáendur við höfunda í beinstreymum og á frumsýningum. Aðdáendur geta keypt ofurspjall til að merkja skilaboðin sín í spjalli í beinni eða Super Stickers til að sjá hreyfimynd sem birtist í spjalli í beinni. Ef þú ert með gjaldgengi fyrir þessa eiginleika skaltu kynna þér hvernig þú kveikir á Súperspjalli eða Super Stickers og hvernig þú getur stjórnað þessum eiginleikum.

SúperTakk gerir höfundum kleift að afla tekna frá áhorfendum sem vilja sýna þeim þakklæti sitt fyrir Shorts og lengri vídeó. Aðdáendur geta keypt staka hreyfimynd og birt einkennandi, litrík og sérsníðanleg ummæli á ummælasvæði vídeósins. Ef þú ert gjaldgeng(ur) skaltu kynna þér hvernig þú kveikir á og hefur umsjón með SúperTakk á rásinni þinni.

Rásaraðildir gera áhorfendum kleift að fá aðild að rásinni þinni gegnum mánaðarlegar greiðslur og fá fríðindi fyrir meðlimi eingöngu, eins og merki, emoji og fleira. Ef þú ert gjaldgeng(ur) skaltu kynna þér hvernig þú kveikir á aðildum og hvernig þú hefur umsjón með aðildum að rásinni þinni.

Sala á YouTube

Við bjóðum gjaldgengum rásareigendum upp á tækifæri til að sýna eigin vörur og vörur undir eigin vörumerki á YouTube. Hafist handa með verslun á YouTube

Ef þú ert tónlistarmaður á YouTube gætirðu einnig átt rétt á að kynna væntanlega tónleika þína á YouTube. Nánar um hvernig á að bæta tónleikamiðum við vídeó hérna.

Árangur þinn á YouTube

YouTube er hluti af Google og fylgir persónuverndarstefnum og meginreglum Google. Þegar þú notar þjónustu okkar sem notandi eða samstarfsaðili treystir þú okkur fyrir upplýsingum þínum. Við skiljum mikilvægi gagna til að mæla árangur þinn á YouTube. Við tryggjum að aðferðir okkar séu í samræmi við persónuverndarstefnu okkar til að vernda friðhelgi og öryggi notenda okkar og samstarfsaðila.

YouTube býður upp á ýmis verkfæri til að gera þér kleift að meta frammistöðu þína og nýta gögnin þín sem best. Ef þú gefur leyfi til, veitum við aðgang að gögnum í YouTube-greiningu fyrir eigendur YouTube-rása og efnis. Nánar um hvers konar skýrslum YouTube-rásir og eigendur efnis hafa aðgang að í gegnum þessi forritaskil. Við erum líka með greiningar, YouTube-greiningu og YouTube-greiningu fyrir flytjendur, innbyggðar beint í verkvanginn til að þú getir skoðað árangursmæligildi á borð við:

Við birtum tilteknar greiningarupplýsingar um rásina og vídeó, eins og samansafn gagna um áskrifendafjölda og áhorf, opinberlega á rásarsíðunni þinni, áhorfssíðunni, vinsælum YouTube-vefsvæðum, YouTube-greiningu fyrir flytjendur, vinsældalistum og innsýn og forritaskilaþjónustu. Við gætum einnig deilt uppsöfnuðum og nafnlausum gögnum um rás og myndskeið með auglýsendum, sölusamstarfsaðilum og rétthöfum, í samræmi við persónuverndarstefnu Google. Við gætum til dæmis sagt að fjöldi heilsuræktarmyndskeiða hafi tvöfaldast á síðasta ári í tilteknu landi eða landsvæði.

Tilteknum gerðum gagna gæti einnig verið deilt þegar þú ákveður að nota YouTube eiginleika. Til dæmis, ef þú tengir opinbera verslun með varning frá þér og YouTube rásina þína verður greiningargögnum um sölu og heimsóknir deilt á milli Google og verslunarinnar. Við látum þig alltaf vita hvernig gögnum gæti verið deilt og um skilmála áætlunarinnar.

Sum YouTube-teymi, til dæmis þau sem starfa við að tryggja traust og öryggi á YouTube, gætu haft aðgang að öðruvísi eða nákvæmari greiningarupplýsingum um rásir og vídeó en fást í gegnum YouTube-greiningar eða forritaskilaþjónustuna. Til dæmis gæti greiningarkerfi YouTube fyrir ruslefni og öryggisbrot farið yfir nákvæmar upplýsingar um umferð á vefsvæði og greiningar til að finna óreglulega hegðun og ná fólki sem brýtur gegn þjónustuskilmálum YouTube í því skyni að hækka áhorf á vídeó eða fjölda áskrifenda.

Við vinnum stöðugt að nýjum aðferðum til að skila nákvæmri og áhrifamikilli innsýn fyrir fyrirtæki og auglýsendur, sérstaklega þar sem áhorf breytist eftir vettvangi og tækjum. Við tryggjum að þessar aðferðir séu í samræmi við persónuverndarstefnu okkar til að vernda friðhelgi og öryggi notenda okkar. Þú getur fengið frekari upplýsingar um hvernig við varðveitum gögnin ef þú hættir að nota þjónustu okkar, sem hluti af varðveislureglum okkar.

Þú getur haft samband viðhöfundaþjónustuna og fengið aðstoð með hvernig þú nýtir gögnin þín best. Við tökum alltaf gjarnan við ábendingum um þau tól sem gagnast þér best.

Stuðningur okkar við nýja notendur

Markmið okkar er að hjálpa nýjum höfundum og flytjendum og við búum reglulega til leiðir til að hlúa að vexti þeirra. Þessar leiðir geta meðal annars verið aðgangur að frábærum hljóðverum í YouTube Spaces, æfingabúðir eins og NextUp og sprotafjármögnun til að styðja við framleiðslu á nýju efni. Í skiptum fyrir þessa aðstoð lofa höfundar og flytjendur að búa til efni eingöngu fyrir YouTube sem notendur okkar geta notið.

Ítarupplýsingar

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
17667210605270195281
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
59
false
false
false
false