Úrræðaleit fyrir vandamál varðandi uppsögn á gjaldskyldri aðild

Áttu í vandræðum með að segja upp aðild þinni að YouTube Premium, YouTube Music Premium eða rásaraðild? Skoðaðu þessar tillögur að því hvernig á að segja upp eða staðfesta að þú hafir sagt upp aðild.

Ef þú átt í vandræðum með að segja upp

Ef skrefin til að segja upp aðild virka ekki fyrir þig geturðu reynt eftirfarandi:

  • Endurhladdu vafrann eða endurræstu forritið og reyndu síðan aftur að segja upp.
  • Prófaðu annan vafra eða huliðsglugga í tölvunni.
  • Skráðu þig inn á reikninginn þinn í öðru tæki og reyndu að segja upp.

Til að staðfesta að uppsögn hafi heppnast

Hér á eftir eru nokkrar leiðir til að staðfesta að þú hafir sagt upp aðild:

  • Leitaðu að tilkynningu og tölvupósti: Þegar þú segir upp gjaldskyldri aðild muntu strax sjá tilkynningu í YouTube fyrir snjalltæki eða í tölvunni þinni sem staðfestir að þú hafir sagt upp aðildinni. Þú færð líka staðfestingarpóst fyrir uppsögninni skömmu eftir uppsögnina á netfangið sem tengist reikningnum þínum. Leitaðu að tölvupóstum frá „@youtube.com“ um staðfestingu á uppsögninni.
  • Athugaðu miðstöðina fyrir greiddar aðildir: Farðu á youtube.com/purchases til að sjá hvort lokatími er tilgreindur fyrir aðild þína og fríðindi. Dagsetningin sem er tilgreind er lokadagur greiðslutímabilsins og sá dagur sem þú hættir að fá fríðindi. Ef þú sérð enga dagsetningu um hvenær fríðindunum þínum lýkur skaltu fara eftir skrefunum til að segja upp og síðan skoða aftur.

Ef þú sérð skuldfærslu eftir uppsögn

Eftirfarandi ástæður gætu verið fyrir því að þú sjáir áfram skuldfærslur eftir uppsögn:

  • Þetta gæti verið gjald fyrir aðra Google-áskrift eða þjónustu: Skoðaðu „Aðgerðir" í Greiðslumiðstöð Google til að staðfesta upplýsingarnar um skuldfærsluna og til að ganga úr skugga um að þetta sé vegna gjaldskyldrar YouTube-aðildar.
  • Aðild þín var endurnýjuð fyrir mistök. Þú eða einhver með aðgang að reikningnum þínum gæti hafa fyrir mistök endurnýjað aðildina þína á youtube.com/purchases. Farðu á þá síðu til að athuga hvort þú hafir virka aðild og farðu eftir skrefunum til að segja upp ef svo er.
  • Þú ert með fleiri en einn reikning með gjaldskylda YouTube-aðild. Þú eða einhver sem hefur aðgang að reikningnum þínum gæti hafa skráð sig með öðru netfangi, tæki eða greiðslufyrirkomulagi. Til að athuga aðra Google-reikninga:
    1. Smelltu á prófílmyndina þína .
    2. Smelltu á Skipta um reikning.
    3. Þú ættir að sjá gátmerki við hliðina á reikningnum sem þú ert skráð(ur) á. Ef þú sérð annan reikning sem þú átt líka skaltu ýta á hann til að skipta yfir á þann reikning.
    4. Athugaðu hvort hinn reikningurinn er skráður fyrir gjaldskyldri aðild með því að fara á youtube.com/purchases. Ef engir aðrir reikningar eru taldir upp getur þú alltaf prófað að skrá þig inn með því að nota aðra Google-reikninga sem þú átt og athuga hvort þú sérð virka aðild
  • Þú ert með fleiri en eina aðild á reikningnum. Skoðaðu þessar algengu ástæður fyrir tvíteknum áskriftum til að sjá hvort þú hafir óvart skráð þig fyrir fleiri en einni gjaldskyldri aðild sem skarast.
  • Ef þú skráðir þig í gegnum iPhone eða iPad er skuldfært fyrir gjaldskyldar YouTube-aðildir í gegnum Apple. Apple hefur eigin reglur um uppsögn og innheimtu, sem geta verið frábrugðnar reglum YouTube. Hafðu samband við Apple til að fá upplýsingar um aðild þína og til að staðfesta uppsögn.

Hvað gerist eftir uppsögn

Þú hefur aðgang að fríðindum þínum þar til greiðslutímabilinu lýkur. Þú munt hafa aðgang að gjaldskyldum aðildarfríðindum fram að lokum núverandi greiðslutímabils, óháð því hvenær þú sagðir upp á greiðslutímabilinu. Þú getur skoðað upplýsingar um aðild þína og lokadag greiðslutímabilsins á youtube.com/paid_memberships.

 

Athugaðu: Frá og með 2022 eru nýir YouTube Premium- og Music Premium-áskrifendur sem skráðu sig á Android gjaldfærðir í gegnum Google Play. Breytingin hefur ekki áhrif á núverandi áskrifendur. Kíktu á payments.google.com til að sjá nýlegar skuldfærslur og sjá hvernig þú ert rukkuð/rukkaður. Til að biðja um endurgreiðslu vegna Google Play-kaupa skaltu fylgja leiðbeiningunum hér.

 

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
16795546447515631590
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
59
false
false
false
false