Ef þú hefur verið 6 mánuði eða lengur utan landsins þar sem þú keyptir aðild að YouTube Premium eða YouTube Music Premium getur verið að YouTube loki á aðild þína.
Einum mánuði fyrir lok sex mánaða tímabilsins færðu tilkynningu um að lokað verði á gjaldskylda aðild þína nema þú skráir þig aftur inn frá því landi. Þegar þú hefur verið sex mánuði í burtu mun YouTube loka sjálfkrafa á gjaldskylda aðild þína og þú getur ekki lengur notið aðildarfríðinda.
Ef þú ert umsjónarmaður fjölskylduáætlunar munu meðlimirnir í fjölskylduáætluninni einnig missa aðildarfríðindin þegar lokað er á reikninginn þinn. Ef þú ert einstaklingur í fjölskylduáætlun sem þú stjórnar ekki mun það ekki hafa áhrif á aðra meðlimi í sömu fjölskylduáætlun þótt lokað verði á aðild þína.
Til eru nokkrar leiðir til að stjórna lokuðum reikningi:
- Farðu aftur til upprunalandsins og fáðu aðild aftur.
- Segðu upp aðildinni.
- Ekki gera neitt: Ef lokað er á reikninginn og hann er lokaður í sex mánuði munum við segja upp gjaldskyldu aðildinni fyrir þig. Þó getur verið skuldfært hjá þér fyrir aðildina á þessu sex mánaða tímabili ef þú aðhefst ekkert. Hér fyrir neðan eru upplýsingar um áhrif á innheimtu.
Innheimta hjá lokuðum reikningum.
Hugsanlega verður skuldfært áfram hjá þér vegna aðildar sem þú hefur sagt upp, allt eftir því hvernig þú skráðir þig í gjaldskyldu aðildina.
- Ef Google sér um innheimtu mun mánaðarleg innheimta stöðvast sjálfkrafa þegar lokað er á reikninginn þinn.
- Ef Apple sér um innheimtu fyrir gjaldskylda aðild verður áfram innheimt mánaðarlega. Þú getur þó ekki fengið aðgang að aðildarfríðindum þínum fyrr en þú ferð aftur á heimilið. Þú getur haldið aðild þinni áfram með því að fara aftur á heimilið eða haft samband við Apple til að segja upp. Endurgreiðslureglur Apple munu gilda.