Áhorfsferill YouTube auðveldar þér að finna vídeó sem þú hefur nýlega horft á og gerir okkur kleift að koma með viðeigandi tillögur að vídeóum, ef kveikt er á honum. Þú getur stjórnað áhorfsferlinum með því að eyða eða slökkva á ferlinum. Ef þú eyðir áhorfsferlinum þínum að hluta til eða í heild, mun YouTube ekki nota það efni til að koma með tillögur að nýjum vídeóum fyrir þig. Vídeó sem þú horfir á þegar slökkt er á áhorfsferlinum birtast ekki á ferlinum.
Skoða áhorfsferil
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Stjórna ferli til að sjá hvaða vídeó þú hefur horft á.
Eyða áhorfsferli
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Stjórna ferli.
- Smelltu á EYÐA til að velja hvaða tímabili þú vilt eyða.
Ef þú ferð beint á flipann Ferill á YouTube gætirðu líka séð möguleika á að hreinsa áhorfsferilinn.
Kveikja eða slökkva á áhorfsferli
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Kveikja á eða Slökkva á.
Á þessari síðu geturðu líka valið hvað þú vilt hafa með þegar kveikt er á áhorfsferli. Með því að velja úr lista yfir valmöguleika geturðu valið að:
- Hafa með YouTube-vídeóin sem þú horfir á.
- Hafa með leitir á YouTube.
- Hafa með radd- og hljóðvirkni YouTube.
Fjarlægja vídeó úr áhorfsferlinum
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Stjórna ferli.
- Smelltu á hnappinn Eyða við hliðina á vídeóinu sem þú vilt fjarlægja.
Leita í áhorfsferli
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Stjórna ferli.
- Smelltu á Leit .
Eyða YouTube-ferlinum þínum sjálfkrafa
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Farðu á myactivity.google.com.
- Smelltu á YouTube-feril.
- Smelltu á Stjórna ferli.
- Smelltu á Sjálfvirk eyðing.
- Veldur tímabil og smelltu síðan á Áfram.
- Smelltu að lokum á Staðfesta.
Sjónvörp, leikjatölvur eða myndlyklar
Gera hlé á skráningu áhorfsferils
- Í valmyndinni vinstra megin skaltu fara í Stillingar .
- Veldu Gera hlé á áhorfsferli.
- Veldu hnappinn Gera hlé á áhorfsferli.
Hreinsa áhorfsferilinn
- Í valmyndinni vinstra megin skaltu fara í Stillingar .
- Veldu Hreinsa áhorfsferil.
- Veldu hnappinn Hreinsa áhorfsferil.
Gera hlé á og hreinsa áhorfsferil án þess að skrá þig inn
Þó að þú skráir þig ekki inn bætir YouTube tillögurnar þínar byggt á vídeóunum sem þú horfir á í því tæki.
Til að slökkva á eða eyða áhorfsferli án þess að skrá þig inn:
- Farðu á YouTube.
- Veldu Ferill.
- Veldu Hreinsa áhorfsferil eða Gera hlé á áhorfsferli.