Þú getur skoðað tekjur þínar á YouTube og frammistöðu rásarinnar með mæligildum í YouTube-greiningu. Sum mæligildi sýnast svipuð en munurinn á þeim er mikilvægur til að skilja auglýsingatekjur þínar á YouTube.
RPM
Tekjur á hver 1.000 áhorf (RPM) er mæligildi sem sýnir hversu miklar tekjur þú hefur haft af hverjum 1.000 vídeóáhorfum. RPM er byggt á ýmsum tekjuuppsprettum, þar á meðal: auglýsingum, rásaraðildum, tekjum af YouTube Premium, Ofurspjalli og Super Stickers.
Hvers vegna er RPM lægra en CPM?
- er reiknað eftir tekjuhlut YouTube.
- inniheldur allt áhorf, þar á meðal það sem ekki var aflað tekna af.
Hver er munurinn á RPM og CPM?
RPM |
CPM |
|
|
Hvers vegna er RPM mikilvægt?
Hvernig get ég aukið RPM hjá mér?
- Kveiktu á tekjuöflun fyrir öll vídeó.
- Kveiktu á miðjuauglýsingum.
- Kveiktu á AltMon-eiginleikum (til dæmis aðildum, Ofurspjalli) til að fjölga tekjulindum.
Hafðu í huga að hver eiginleiki er með sín eigin skilyrði og leiðbeiningar.
Ef RPM hjá mér er á upp- eða niðurleið, hvað þýðir það?
Hvers vegna sýnir RPM mér ekki tekjurnar mínar?
RPM er gagnlegt mæligildi um tekjuöflun fyrir höfunda en það getur ekki sagt þér alla söguna. Hér eru hlutir sem það sýnir ekki:
- Tekjur af vörusölu eða notkun á vöruhillunni.
- Tekjur af vörumerkjasamstarfi og kostun (að YouTube BrandConnect undanskildu).
- Allar aðrar tekjur sem fást óbeint gegnum YouTube (þjónustur, erindi, ráðgjafargjöld).
RPM getur ekki upplýst þig um hvaða tekjulind veldur sveiflum í heildartekjum hjá þér
Vegna þess að RPM sameinar nokkur mæligildi getur það ekki upplýst þig um hvaða tekjulind veldur sveiflum á tekjum hjá þér.
Þú gætir til dæmis séð lækkun á RPM vegna þess að áhorf gæti aukist en ekki er kveikt á auglýsingum í öllu því áhorfi. Þú gætir líka séð RPM fara upp en engar umtalsverðar breytingar á áhorfi vegna þess að áhorfendur eru að skrá sig í rásaraðildir.
Við mælum með því að þú notir allar þær greiningar sem YouTube býður upp á til að skilja til hlítar þær breytingar sem verða á RPM.
CPM
Kostnaður á hverjar 1000 birtingar (CPM) er mæligildi sem sýnir hve miklum peningum auglýsendur eyða í að birta auglýsingar á YouTube. Þú getur séð nokkur mismunandi mæligildi fyrir CPM í YouTube-greiningu:
- CPM: Verð sem auglýsandi greiðir fyrir 1000 auglýsingabirtingar. Auglýsing telst birt í hvert sinn sem hún er sýnd.
- Verð/1.000 spilanir: Verðið sem auglýsandi greiðir fyrir 1.000 spilanir á vídeói þar sem auglýsing birtist.
Hver er munurinn á CPM og verð/1.000 spilanir?
Hvers vegna skiptir CPM máli?
Hvers vegna er CPM hjá mér að breytast?
- Árstími: Auglýsendur bjóða hærra eða lægra eftir árstíma. Margir auglýsendur bjóða til dæmis hærra rétt fyrir hátíðar.
- Breytingar á landsvæðum áhorfenda: Auglýsendur geta valið til hvaða landsvæða þeir vilja ná með auglýsingum. Samkeppni á auglýsingamarkaðnum er mismunandi eftir stöðum og því er CPM breytilegt eftir landsvæði. Ef breytingar verða á því hvaðan áhorfið hjá þér kemur sérðu yfirleitt breytingar á CPM. Ef þú varst áður með áhorf frá landsvæði með hærra CPM en færð núna meira áhorf frá landsvæðum með lægra CPM gætirðu séð lækkun á CPM hjá þér.
- Sveiflur í dreifingu á tiltækum auglýsingasniðum: Ólík auglýsingasnið eru oft með mismunandi CPM. Ef það eru til dæmis fleiri auglýsingar sem ekki er hægt að sleppa í fjölda auglýsingaplássa gæti CPM verið hærra.
Áætlaðar tekjur samanborið við auglýsingatekjur
- Áætlaðar tekjur: Tekjur af öllum uppsprettum, þar á meðal rásaraðildum, YouTube Premium tekjur og Ofurspjall. Þú sérð þessi mæligildi áfram á tekjuflipanum.
- Áætlaðar auglýsingatekjur: Tekjur bara af auglýsingum í vídeóunum þínum. Þú sérð þessi mæligildi í skýrslunni um tekjuuppsprettur.
Áhorf, auglýsingabirtingar og áætlaðar spilanir með tekjum
- Áhorf: Fjöldi skipta sem horft var á vídeóið þitt.
- Auglýsingabirtingar: Fjöldi skipta sem horft var á stakar auglýsingar í vídeóunum þínum.
- Áætlaðar spilanir með tekjum: Fjöldi skipta sem horft var á videóið með auglýsingum.
Ef horft var í 10 skipti á vídeóið þitt og í 8 skipti fylgdi auglýsing með ættirðu að hafa 10 áhorf og 8 áætlaðar spilanir með tekjum. Ef ein af þessum áætluðu spilunum með tekjum var í raun með 2 auglýsingar myndirðu vera með 9 auglýsingabirtingar.
Auglýsingar fylgja ekki með í öllu áhorfi á YouTube. Áhorf gæti verið án auglýsingar ef:
- Vídeóið er ekki auglýsingavænt.
- Slökkt er á auglýsingum fyrir vídeóið.
- Auglýsing er ekki tiltæk sem hægt er að sýna fyrir þennan ákveðna áhorfanda. Auglýsendur geta valið að miða auglýsingar að ákveðnum tækjum, lýðfræði og áhugamálum. Verið gæti að áhorfandinn þinn passi ekki við þessa auglýsingamiðun. Nánar um tiltækar miðunaraðferðir fyrir vídeóauglýsingar.
- Ýmsir aðrir þættir, til dæmis landsvæði áhorfandans, hversu nýlega viðkomandi sá auglýsingu, hvort viðkomandi er með Premium áskrift og fleira.
Vegna þessa ólíka áhorfs er líklegt að áhorfið sé meira hjá þér en sem nemur áætluðum tekjum með spilunum.