Skilningur á takmörkuðum gögnum í YouTube-greiningu

Við viljum bjóða höfundum upp á gagnleg gögn til að taka upplýstar ákvarðanir um rásina þeirra, en sum gögn geta verið takmörkuð í YouTube-greiningu.

Athugaðu: Ef vídeóið eða rásin er ekki með nægilega umferð á völdu tímabili er ekki víst að þú sjáir gögnin þín. Einnig er mögulegt að þú sjáir engin gögn ef þú valdir síu, til dæmis landsvæði eða kyn.

Það sem þú sérð

Þú gætir séð:

  • Skilaboð í Greiningu um að þú getir ekki séð alla skýrsluna, til dæmis „Ekki nægileg lýðfræðileg gögn“.
  • Mismun á heildartölunni í „Alls“ í skýrslu eða spjaldi og samtölunni fyrir línurnar. Þetta kemur fyrir þegar línur með gögnum eru ekki tiltækar en samt sem áður reiknaðar með í heildartölunni til að fá nákvæma niðurstöðu. Þú munt sjá athugasemd neðst í töflunni um að eingöngu efstu niðurstöðurnar séu tiltækar.

Ef þú vilt sjá meira skaltu prófa að lengja tímabilið eða fjarlægja síur og sundurliðanir. Breytingar á þessum stillingum geta aukið gagnamagnið í heildarskýrslunni.

Gerðir takmarkaðra gagna

Eftirfarandi upplýsingar geta verið takmarkaðar:

Lýðfræðileg gögn

Lýðfræðileg gögn, til dæmis aldur og kyn, geta verið takmörkuð í YouTube-greiningu. Þú getur til dæmis séð skilaboð þegar þú skoðar lýðfræðileg mæligildi fyrir eitt vídeó eða land ef ekki eru nægileg gögn fyrir hendi til að sýna.
Þú munt ekki sjá lýðfræðileg gögn fyrir lokuð eða óskráð vídeó, sama hversu mikil umferðin er á rásinni þinni.

Gögn yfir áhorfendur

Hugsanlega sérðu takmörkuð áhorfendagögn í YouTube greiningu ef:

Landafræðigögn

Mæligildi eða tölur sem tengjast landi geta verið takmörkuð. Gögn um tekjur eftir landi eru ekki takmörkuð.

Þú munt ekki sjá gögn eftir landi fyrir eftirfarandi, sama hversu mikil umferð er á rásinni þinni:

  • Skýrslur í rauntíma
  • Lokuð eða óskráð vídeó

Leitarfyrirspurnir og vefslóðir

Þú getur séð takmörkuð gögn um leitarfyrirspurnir og ytri vefslóðir í skýrslum um uppsprettur umferðar, spilunarstaði og uppsprettur áskrifenda. Til dæmis er hugsanlegt að stakar leitarfyrirspurnir og vefslóðir sem fá litla umferð birtist ekki. Þú munt áfram sjá leitarfyrirspurnir og vefslóðir sem beina áhorfendum á efnið þitt.
Athugaðu: Þú gætir séð önnur mæligildi í YouTube-greiningu eftir verkvangi – YouTube Studio í tölvu eða YouTube Studio-forritinu.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
12250411775205197891
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
59
false
false