Fáðu áskrift að YouTube-áhorfendarásinni til að fá nýjustu fréttir, tilkynningar og ábendingar.
Þú getur valið hvort lokað eða opinbert sé að hvaða rásum þú ert áskrifandi. Sjálfgefið er stillt á lokað.
- Lokað: Þegar áskriftirnar þínar eru stilltar á lokað geta engir aðrir notendur séð hvaða rásum þú ert áskrifandi að. Reikningurinn þinn birtist ekki á áskrifendalista rásar, jafnvel þó að þú sért með áskrift.
Athugaðu: Ef þú tekur þátt í spjalli í beinni fyrir áskrifendur eingöngu munu aðrir áhorfendur geta séð að þú sért með áskrift að rásinni. - Opinbert: Þegar áskriftirnar þínar eru stilltar á opinbert geta aðrir notendur séð að hvaða rásum þú ert áskrifandi. Áskriftirnar þínar eru tilgreindar á heimasíðu rásarinnar þinnar. Reikningurinn þinn er tilgreindur í áskrifendalistanum á þeim rásum sem þú ert með áskrift að.
Gerðu áskriftir þínar að rásum opinberar eða lokaðar
- Skráðu þig inn á YouTube í tölvu.
- Smelltu á prófílmyndina þína efst til hægri .
- Smelltu á Stillingar .
- Í vinstri valmyndinni skaltu velja Persónuvernd.
- Kveiktu eða slökktu á Hafa allar áskriftirnar mínar lokaðar.