Verkfæri og þjónusta fyrir leiki og beinstreymi

Gerðu beinstreymið þitt áhugaverðara og gagnvirkara með verkfærum og þjónustu frá þriðja aðila sem eru í boði á YouTube í beinni.

Athugaðu: Engar af vörunum hér fyrir neðan eru framleiddar eða samþykktar af Google LLC. Það er mikilvægt að þú metir þessar vörur og ákveðir hvað er skynsamlegast fyrir þig eða fyrirtækið þitt.

Verkfæri fyrir leiki og beinstreymi

Verkfæri Lýsing
Discord Bættu samfélagið þitt með nútíma radd- og textaspjallforritinu Discord. Kristaltær rödd, mismunandi möguleikar fyrir þjónustu við biðlara og rásir, snjallforrit og fleira. Discord gerir þér kleift að bjóða meðlimum þínum aðgang að lokuðum radd- og textanetþjónum.
GameWisp GameWisp færir YouTube notendum áskriftarverkfæri til að vekja áhuga áhorfenda og afla tekna.
IFTTT.com IFTTT (If This, Then That) er gjaldfrjáls netþjónusta þriðja aðila sem tengir mismunandi forrit, þjónustur og tæki saman. Ofurspjall virkar núna með IFTTT svo höfundar geti bætt við skemmtilegri og gagnvirkri leið fyrir áhorfendur að eiga samskipti með Ofurspjalli. Nánari upplýsingar um IFTTT og Ofurspjall.
Infiniscene Infiniscene gerir þér kleift að streyma beint úr vafranum þínum. Skráðu þig inn með Google reikningnum þínum og bættu við því sem þú vilt deila og veldu Bein útsending. Uppfærðu streymið án flókinnar uppsetningar – ekkert meira vesen með bitahraða eða flóknar kóðunarstillingar.
Nightbot Nightbot er spjallari sem gerir þér kleift að sjálfvirkja spjallskilaboð í beinstreymi með ummælastjórnun og fleiri eiginleikum
StreamElements StreamElements er allt í einu verkfærasett fyrir straumspilara. Meðal eiginleika eru yfirlagnir í streymi (myndrænn pakki), spjallari fyrir aukna þátttöku áhorfenda, kerfi fyrir framlög og skýrslur eftir streymi sendar í tölvupósti. ÞJónustuteymið mun hjálpa þér að setja streymið upp og nýta verkfærin þeirra til hins ýtrasta.
Streamlabs Verðlaunaðu trygga áhorfendur með því að þakka fyrir með aðlaðandi sprettigluggatilkynningum í streyminu. Taktu við fjárframlögum með mismunandi greiðslumöguleikum, stjórnaðu markmiðum fyrir fjárframlög, bættu merkjum við atriði og meira.
XSplit Broadcaster og Gamecaster XSplit Gamecaster auðveldar þér að streyma og taka upp bestu augnablikin úr leikjaspilun þinni með einum smelli. Það er einfalt, auðvelt í notkun og fullkomið til að deila spilun þinni með öllum heiminum.
YuzzitPro

YuzzitPro gerir þér kleift að klippa hápunkta frá beinstreyminu þínu. Þú þarft ekki að bíða eftir að viðburðinum sé lokið. Þú getur klippt og deilt augnablikum með einum smelli á samfélagsmiðlum. Engin þörf á dýrri tölvu, YuzzitPro er í skýinu svo þú hefur aðgang að því beint úr vafranum þínum. Það er svo einfalt í notkun að engin þjálfun er nauðsynleg.

Fleiri tilföng

Ef þig vantar aðstoð við að velja kóðunarhugbúnað til að streyma á YouTube skaltu kíkja á listann okkar yfir Tæki og hugbúnað sem eru staðfest fyrir beinar útsendingar.

Þú getur einnig fengið frekari upplýsingar um hvernig þú getur búið til þín eigin verkfæri fyrir beinstreymi með gögnum YouTube í beinni fyrir forritaskil.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Aðalvalmynd
9935078592138297073
true
Leita í hjálparmiðstöð
true
true
true
true
true
59
false
false