YouTube birtir vídeó með ólík myndhlutföll eftir verkvangi og vídeósniði. YouTube vídeóspilarinn lagar sig sjálfkrafa að stærð hvers vídeós.
Athugaðu: Þessi eiginleiki er aðeins í boði í snjalltækjum.
YouTube-forritið fyrir iPhone og iPad lagar sig sjálfkrafa að stærð vídeósins. Hvort sem vídeóið er lóðrétt, ferhyrnt eða lárétt mun það fylla út í skjáinn. Lóðrétti vídeóspilarinn (andlitsmynd) lagar sig að myndhlutfalli vídeósins – hann hækkar ef um ferhyrnd eða lóðrétt vídeó er að ræða og minnkar ef um breiðtjaldsvídeó er að ræða.
Hvernig lóðrétt vídeó birtast
Lóðrétt vídeó munu nú birtast í vídeóspilaranum án svartra strika til hliðanna. Dæmi:
Áhorfandi getur ýtt á neðst til hægri í vídeóinu til að fara í allan skjáinn lóðréttan til að horfa á allt vídeóið.