YouTube birtir vídeó með ólík myndhlutföll eftir verkvangi og vídeósniði. YouTube vídeóspilarinn lagar sig sjálfkrafa að stærð hvers vídeós.
Hvernig vídeóið mun birtast
Staðlað myndhlutfall fyrir YouTube í tölvu er 16:9. Ef vídeóið þitt er með annað myndhlutfall mun spilarinn sjálfkrafa breytast í kjörstærðina sem hentar fyrir vídeóið og tæki áhorfandans.
Fyrir sum myndhlutföll í videóum og tækjum, til dæmis 9:16 lóðrétt vídeó í tölvuvöfrum , gæti YouTube bætt við meiri uppfyllingu til að áhorf verði sem best. Uppfyllingin er sjálfgefið hvít og dökkgrá þegar kveikt er á dökku þema.
Til að niðurstöður verði sem bestar skaltu forðast að bæta uppfyllingu eða svörtum röndum beint við vídeóið. Uppfylling truflar getu YouTube til að laga spilarann með kvikum hætti að stærð vídeós og tæki áhorfanda.
Ráðlögð upplausn og myndhlutföll
Fyrir sjálfgefið 16:9 myndhlutfall skaltu kóða í þessum upplausnum:
- 4320p (8k): 7680x4320
- 2160p (4K): 3840x2160
- 1440p (2k): 2560x1440
- 1080p (HD): 1920x1080
- 720p (HD): 1280x720
- 480p (SD): 854x480
- 360p (SD): 640x360
- 240p (SD): 426x240