Deila YouTube-vídeóum
-
Byrjaðu að horfa á vídeó á youtube.com.
-
Undir vídeóinu skaltu smella á Deila .
- Svæði mun opnast þar sem ýmsir deilingarvalkostir sjást:
- Samfélagsmiðlar: Smelltu á samfélagsmiðlatákn (til dæmis Facebook, Twitter) til að deila vídeóinu þar.
- Tölvupóstur: Veldu tölvupósttáknið til að senda tölvupóst með því að nota sjálfgefinn tölvupósthugbúnað tölvunnar.
- Innfella: Smelltu á hnappinn Innfella til að búa til kóða sem þú getur notað til að innfella vídeóið á vefsvæði.
- Afrita tengilinn: Smelltu á hnappinn Afrita til að afrita tengil á vídeóið sem þú getur límt annars staðar, til dæmis í tölvupóstskilaboðum.
- Byrja á: Til að tengja á ákveðinn hluta vídeós skaltu merkja í þennan reit og slá inn upphafstímann áður en þú afritar tengilinn. Ef þú vilt til dæmis byrja vídeóið eftir 2 mínútur og 30 sekúndur skaltu merkja í reitinn og slá inn „2:30“.
- Samfélagsfærsla: Ef þú hefur aðgang að samfélagsflipanum geturðu birt vídeóið í opinberri færslu.
Deila YouTube rásum
- Farðu á síðu rásarinnar.
- Afritaðu vefslóðina í veffangastiku vafrans.
- Límdu vefslóðina þar sem þú vilt deila henni.
Ef þú vilt búa til sérsniðna vefslóð rásar sem auðvelt er að deila skaltu bæta YouTube-rásarnafni þínu við YouTube-vefslóðina.