Reglur netsamfélagsins eru leiðbeinandi reglur um hegðun á YouTube. Þessar reglur eiga við um allt efni á verkvangnum, líka óskráð og lokað efni, ummæli, tengla, færslur og smámyndir. Þessi listi er ekki tæmandi. Ef efnið þitt brýtur gegn reglum netsamfélagsins gæti rásin þín fengið punkt.
Athugaðu: Við kunnum að fjarlægja efni af öðrum ástæðum en vegna brota gegn reglum netsamfélagsins. Til dæmis vegna kvörtunar um persónuverndarbrot frá fyrsta aðila eða vegna dómsúrskurðar. Í slíkum tilfellum fær rásin þín ekki punkt.
Heilbrigð skynsemi við gerð efnis: reglur YouTube-netsamfélagsins
Það sem gerist þegar þú færð punkt
Þegar þú færð punkt færðu tilkynningu um það í tölvupósti. Þú getur líka valið að fá tilkynningar sendar til þín gegnum tilkynningar fyrir snjalltæki og tölvu og í rásarstillingunum. Við látum þig líka vita:
- Hvaða efni var fjarlægt
- Hvaða reglur voru brotnar (til dæmis um áreitni eða ofbeldi)
- Hvaða áhrif þetta hefur á rásina þína
- Hvað þú getur gert næst
Ef efnið þitt brýtur gegn reglum netsamfélagsins eru áhrifin á rásina þessi:
Viðvörun
Við skiljum að mistök geta átt sér stað og að þú ætlir þér ekki að brjóta reglurnar okkar — þess vegna færðu yfirleitt bara viðvörun eftir fyrsta brot. Til að viðvörunin renni út eftir 90 daga geturðu klárað valfrjálsa regluþjálfun. En ef efnið frá þér brýtur sömu reglur innan 90 daga gluggans mun viðvörunin ekki renna út og rásin þín fær punkt.
Stundum er eitt tilvik þar sem um mjög alvarlegt brot er að ræða nóg til þess að rás verði lokað án viðvörunar. Ef þú telur að við höfum gert mistök geturðu sent inn áfrýjun.
Valfrjáls þjálfun í reglum
Þjálfun í reglum er stuttar fræðsluupplifanir í vöru byggðar á þeirri tilteknu reglu í reglum netsamfélagsins sem þú braust gegn.
Ef þú fékkst viðvörun vegna reglna netsamfélagsins geturðu nálgast regluþjálfunina í YouTube-forritinu og á Studio-reikningnum þínum þar sem þú skoðar yfirleitt reglubrotin þín. Þar á meðal í stjórnborði Studio og á efnisflipanum. Þú munt líka sjá tengil til að opna þjálfunina í tilkynningum á borða og í tölvupósti. Athugaðu: Ekki eru allar viðvaranir vegna reglna samfélagsins gjaldgengar í þjálfun í reglum.
Ef þú klárar valfrjálsa regluþjálfun rennur viðvörunin út eftir 90 daga. Níutíu daga tímabilið hefst eftir þjálfunina, ekki þegar viðvörunin er gefin. Ef þú brýtur aðrar reglur eftir að þú klárar þjálfunina muntu fá aðra viðvörun.
Endurtekin brot á reglum okkar eða stakt dæmi um alvarlegt brot gætu samt leitt til þess að reikningnum þínum verði lokað varanlega. Við gætum komið í veg fyrir að notendur sem ítrekað gerast brotlegir geti klárað þjálfun síðar.
Fyrsti punktur
Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að efnið þitt samræmist ekki reglum okkar í annað sinn færðu punkt.
Punkturinn þýðir að þú getur ekki gert eftirfarandi í eina viku:
- Hlaðið upp vídeóum eða beinstreymum
- Hafið áætlað beinstreymi
- Stillt vídeó þannig að það verði opinbert á tilteknum tíma
- Búið til frumsýningu
- Bætt við stiklu fyrir væntanlega frumsýningu eða beinstreymi
- Búið til sérsniðnar smámyndir eða færslur
- Búið til, breytt eða bætt þátttakendum við spilunarlista
- Bætt við eða fjarlægt spilunarlista af áhorfssíðum með því að nota hnappinn „Vista“
Það efni frá þér sem áætlað var að gera opinbert er stillt á „lokað" meðan á refsitímanum stendur. Þú verður að velja aftur tíma fyrir efnið þegar lokunartímabilinu lýkur.
Athugaðu: Refsingin hefst þann dag sem hún er staðfest.
Eftir eina viku eru allar heimildir virkjaðar aftur sjálfvirkt en punkturinn verður á rásinni þinni í 90 daga.
Punktur getur líka valdið því að þú tapir aðgangi að ítareiginleikum. Nánar um það hvernig þú getur fengið aðgang aftur.
Annar punktur
Ef þú færð annan punkt á 90 daga tímabilinu eftir fyrsta punktinn geturðu ekki birt efni í tvær vikur. Ef ekkert kemur upp á verða allar heimildir sjálfkrafa virkjaðar aftur eftir tveggja vikna tímabilið. Hver punktur rennur ekki út fyrr en 90 dögum eftir að hann var gefinn.
Þriðji punktur
Þrír punktar innan sama 90 daga tímabils gætu leitt til þess að rásin þín verði fjarlægð varanlega af YouTube. Hver punktur rennur ekki út fyrr en 90 dögum eftir að hann var gefinn.
Athugaðu: Eyðing efnis dugar ekki til að fella niður punkt. Við getum líka gefið punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins þó að viðkomandi efni hafi verið eytt. Þú getur fengið meiri upplýsingar um það hvernig við höldum eftir efni sem hefur verið eytt í persónuverndarstefnu okkar.
Ef opinber flytjandarás þín fær punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins verður rásinni lokað og hún gerð að venjulegri rás. Nánar.
Hvað gera skal þegar þú færð punkt
Við viljum auðvelda þér að vera áfram á YouTube og því skaltu muna að gera eftirfarandi:
- Lærðu um reglur netsamfélagsins til að passa að efnið þitt fylgi reglum okkar.
- Ef rásin þín fékk punkt og þú telur að við höfum gert mistök skaltu láta okkur vita. Þú getur áfrýjað niðurstöðunni hér.
YouTube áskilur sér líka rétt til að takmarka möguleika höfundar á að búa til efni. Slökkt getur verið á rásinni þinni eða henni meinað að nota alla eiginleika YouTube.
Ef það gerist máttu ekki nota, búa til eða eignast aðra rás til að komast framhjá takmörkununum. Bannið gildir svo lengi sem takmarkanirnar eru virkar á YouTube-rásinni þinni. Brot á takmörkununum telst sniðganga á þjónustuskilmálum okkar og gæti leitt til þess að öllum fyrirliggjandi YouTube-rásum þínum verði lokað fyrir fullt og allt og einnig nýjum rásum sem þú býrð til eða eignast og rásum þar sem þú birtist ítrekað eða á áberandi hátt.