Áður misstu Google-reikningar með punkta vegna brota gegn reglum netsamfélagsins, punkta vegna höfundarréttarbrota eða lokanir á grundvelli Content ID aðgang að ýmsum eiginleikum og þjónustum fyrir reikninginn.
Við höfum gert breytingar á því hvernig þetta virkar og hér fyrir neðan geturðu lesið þér til um breytingar á því hvernig punktar vegna brota gegn reglum netsamfélagsins, punktar vegna höfundarréttarbrota og lokanir á grundvelli Content ID hafa áhrif á Google reikninginn þinn.
Leiðbeiningar vegna punkta.
Ef þú færð punkt vegna höfundarréttarbrota eða punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins hefurðu áfram aðgang að flestum eiginleikum og þjónustum á YouTube. En punktar sem reikningurinn fær geta haft áhrif á tekjuöflunarmöguleika þína á rásinni. Ef þú hefur ekki aðgang að ákveðnum eiginleikum gætirðu þurft að staðfesta reikninginn þinn.
Hafðu þessar leiðbeiningar í huga:
- Ef þú færð punkt vegna virks beinstreymis eða beinstreymis í safni gæti verið slökkt á aðgangi þínum að beinstreymi. Nánar um takmarkanir á beinstreymi.
- Ef þú færð þrjá punkta gæti YouTube-rásinni þinni verið lokað.
- Punktar hreinsast ekki þó að þú eyðir vídeóum. Sjáðu hvernig þú getur leyst úr höfundarréttarbrotum eða áfrýjað punktum vegna brota gegn reglum netsamfélagsins.
- Vídeó getur fengið mörg tilköll vegna Content ID eða beiðnir um fjarlægingar en bara einn punkt vegna höfundarréttarbrota í hvert skipti.
Ef þú lendir í vanda skaltu skoða hvernig þú getur fengið aðstoð sem höfundur á YouTube.