Notaðu stjórnborð YouTube Studio til að fá yfirlit yfir tölfræði rásarinnar, ummæli og fleira.
Skoða stjórnborðið þitt
Til að opna stjórnborðið:
- Farðu beint í YouTube Studio.
- Hvar sem er á YouTube skaltu velja prófílmyndina þína YouTube Studio.
Farðu í stjórnborðið
Í stjórnborðinu eru nokkur spjöld.
- Brot rásar: Viðvaranir eða punktar vegna brota gegn reglum netsamfélagsins eða niðurstöður áfrýjana.
- Árangur nýjasta efnis: Yfirlit yfir árangur nýjasta vídeósins eða beinstreymisins þíns. Þú getur minnkað spjaldið til að fela röðunargögnin. Þegar það hefur verið minnkað breytist það ekki fyrr en þú stækkar það aftur.
- Birt vídeó: Yfirlit yfir nýlega birt vídeó.
- Síðasta færsla: Yfirlit yfir virkni áhorfenda þinna við nýjustu samfélagsfærsluna frá þér. Þú sérð þetta eingöngu ef samfélagsflipinn er tiltækur fyrir þig.
- Mikilvægar tilkynningar: Mikilvæg skilaboð fyrir rásina og vídeóin þín. Nánar hér fyrir neðan.
- Nýtt afrek: Yfirlit yfir áhorfstímann þinn, áskrifenda- og áhorfsáfanga.
- Greining á rás: Stutt yfirlit yfir áhorfstíma, áhorf og áskrifendur rásarinnar þinnar undanfarna 28 daga. Þú getur líka séð núverandi áskrifendur og vinsælustu vídeóin.
- Nýjustu ummælin: Yfirlit yfir nýjustu ummælin sem þú hefur ekki svarað.
- Nýleg virkni: Listi yfir nýlega áskrifendur og meðlimi að rásinni þinni.
- Fréttir: Nýjustu fréttirnar frá YouTube.
- Creator insider: Nýjustu vídeóin frá Creator Insider rásinni.
- Það sem er nýtt í Studio: Nýjustu uppfærslurnar á höfundaverkfærum og eiginleikum.
- Hugmyndir fyrir þig: Sérsniðnar tillögur og góð vinnubrögð fyrir rásina þína.
- Nýlegir áskrifendur: Listi yfir nýjustu áskrifendurna að rásinni. Þú getur valið tímabil og raðað listanum eftir fjölda áskrifenda.
- Þekkt vandamál: YouTube vandamál í gangi sem hafa áhrif á margar rásir eða notendur.
Athugaðu: Sum spjöld birtast hugsanlega ekki byggt á nýlegri virkni á rásinni þinni.
Svona notarðu YouTube Studio (í tölvu)
Skilningur á mikilvægum tilkynningum
Eftirfarandi tilkynningar geta birst í spjaldinu fyrir mikilvægar tilkynningar í stjórnborði rásarinnar. Við erum að vinna í að bæta fleiri tilkynningum við þetta spjald seinna meir.
- Tekjuöflun: Ef rásin þín er samþykkt, ekki lengur gjaldgeng eða ekki samþykkt í tekjuöflun.
- Höfundarréttur: Ef þú hefur fengið punkt vegna höfundarréttarbrota eða tilkall til höfundarréttar.
Eftirfarandi tilkynningar munu ekki birtast í spjaldinu fyrir mikilvægar tilkynningar. Við erum að vinna í að bæta tilkynningum af þessu tagi við spjaldið seinna meir. Fylgstu með tölvupóstinum þínum til að fá fréttir um þetta:
- Tilkynningar varðandi AdSense fyrir YouTube-reikninginn þinn.
- Niðurstöður úr handvirkri skoðun á auglýsingavænu efni.