Þegar við fjarlægjum efnið þitt vegna brots gegn reglum netsamfélagsins gætirðu fengið punkt. Punktar eru gefnir þegar efni á YouTube er tilkynnt til skoðunar, annaðhvort af meðlimum YouTube-samfélagsins eða snjallgreiningartækni okkar, og starfsfólk sem sér um yfirferð hjá okkur ákveður að það fylgi ekki reglum netsamfélagsins. Ef rás fær punkt færðu tölvupóst, tilkynningu í farsímann og tölvuna og viðvörun í rásarstillingunum hjá þér næst þegar þú skráir þig inn á YouTube.
Áður en þú byrjar skaltu skoða reglurnar sem tengjast punktinum. Við sýnum líka dæmi um efni sem fengi punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins. Þú getur áfrýjað viðvörunum og punktum í sex mánuði eftir að þú færð viðvörun eða punkt. Þegar efni er fjarlægt hefurðu allt að eitt ár eftir að efnið var fjarlægt til að senda inn áfrýjun. Þessi eins árs gluggi gildir um fjarlægingu efnis af öllum gerðum að meðtöldum vídeóum, færslum, spilunarlistum, smámyndum og vefslóðum.
Áfrýjaðu fjarlægingu á vídeói
YouTube Studio-forritið fyrir Android
- Opnaðu YouTube Studio-forritið
.
- Í valmyndinni neðst skaltu ýta á Efni
.
- Veldu vídeó með takmörkunum og ýttu á takmörkunina.
- Ýttu á Skoða vandamál.
- Ýttu á viðkomandi tilkall.
- Sláðu inn ástæðu þess að þú áfrýjar og smelltu á Senda.
YouTube-forritið fyrir Android
- Opnaðu YouTube-forritið
.
- Neðst í hægra horninu skaltu ýta á Þú
Skoða efni.
- Skoðaðu upplýsingarnar fyrir neðan „Við fundum eftirfarandi“
Ýttu á Grípa til aðgerða
Áfrýja.
- Athugaðu: Þú getur ýtt á felliörina
til að skrifa frekari upplýsingar í textareitinn „Láttu okkur vita hvað þér finnst (valfrjálst)“.
- Athugaðu: Þú getur ýtt á felliörina
Ef um er að ræða spilunarlista eða smámynd:
Þú færð tölvupóst ef spilunarlistinn þinn eða smámynd var fjarlægð vegna brota gegn reglum netsamfélagsins. Ef þú telur að efnið þitt brjóti ekki gegn reglum netsamfélagsins og hafi fengið punkt eða verið fjarlægt fyrir mistök skaltu nota eyðublaðið í tölvupóstinum til að áfrýja.
Ef þú fékkst punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins vegna tengla í efninu þínu skaltu passa að þú þekkir reglur okkar og áfrýjunarferli vegna tengla í efni.
Áfrýjun punkts vegna brota gegn reglum netsamfélagsins
Þegar við fjarlægjum efnið þitt vegna brots gegn reglum netsamfélagsins gætirðu fengið punkt. Punktar eru gefnir þegar efni á YouTube er tilkynnt til skoðunar, annaðhvort af meðlimum YouTube-samfélagsins eða snjallgreiningartækni okkar, og starfsfólk sem sér um yfirferð hjá okkur ákveður að það fylgi ekki reglum netsamfélagsins. Ef rás fær punkt færðu tölvupóst, tilkynningu í farsímann og tölvuna og viðvörun í rásarstillingunum hjá þér næst þegar þú skráir þig inn á YouTube.
Áður en þú byrjar skaltu skoða reglurnar sem tengjast punktinum. Við sýnum líka dæmi um efni sem fengi punkt vegna brota gegn reglum netsamfélagsins. Þú getur áfrýjað í sex mánuði eftir að þú færð viðvörun eða punktur var veittur.
Áfrýjun punkts
- Farðu í stjórnborðið í YouTube Studio.
- Veldu spjaldið fyrir rásarbrot.
- Veldu ÁFRÝJA.
Ef tenglar í efninu þínu leiddu til punkts vegna brota gegn reglum netsamfélagsins skaltu kynna þér reglur okkar og áfrýjunarferli vegna tengla í efni.
Ef þetta er spilunarlisti eða smámynd:
Þú færð tölvupóst ef spilunarlistinn þinn eða smámynd var fjarlægð vegna brota gegn reglum netsamfélagsins. Ef þú telur að efnið þitt brjóti ekki gegn reglum netsamfélagsins og hafi fengið punkt eða verið fjarlægt fyrir mistök skaltu nota eyðublaðið í tölvupóstinum til að áfrýja.
Eftir að þú sendir inn áfrýjun
Þú munt fá tölvupóst frá YouTube sem lætur þig vita af niðurstöðu áfrýjunarinnar. Eitt af eftirfarandi mun gerast:
- Ef við teljum að efnið þitt hafi fylgt reglum netsamfélagsins verður það sett inn aftur og við fjarlægjum punktinn af rásinni þinni. Ef þú áfrýjar viðvörun og áfrýjunin er tekin til greina mun viðvörun fylgja næsta broti.
- Ef við komumst að því að efnið þitt hafi fylgt reglum netsamfélagsins en sé ekki við hæfi allra áhorfenda munum við setja aldurstakmark á efnið. Ef þetta er vídeó verður það ekki sýnilegt notendum sem ekki eru skráðir inn, eru undir 18 ára eða eru með kveikt á takmörkunarstillingu. Ef um sérsniðna smámynd er að ræða verður hún fjarlægð.
- Ef við komumst að þeirri niðurstöðu að efnið þitt hafi brotið gegn reglum netsamfélagsins mun punkturinn áfram gilda og vídeóið verður ekki sett aftur inn á vefsvæðið. Engin viðbótarrefsing er veitt fyrir áfrýjanir sem er hafnað.
Þú getur aðeins áfrýjað hverjum punkti einu sinni.