Þegar þú talar við YouTube-raddleit, sem er Google-þjónusta, notar Google hljóðgreiningartækni sína til að vinna úr hljóðinu og svara þér. Ef þú snertir til dæmis hljóðnematáknið á YouTube-leitarstikunni til að nota röddina til að finna myndskeið, þýðir hljóðgreiningartækni Google það sem þú segir í orð og setningar sem YouTube notar til að leita í atriðaskrá og birta þér þær niðurstöður sem eiga best við.
YouTube-ferill vistar YouTube-vídeó sem þú horfir á og það sem þú leitar að til að sýna þér betri tillögur, muna hvað þú varst að gera síðast og fleira.
Valkvæðar stillingar hljóðupptöku á YouTube gera þér einnig kleift að vista hljóðupptökur með YouTube-ferli þegar þú notar YouTube-raddleit. Slökkt er á stillingunni „Hljóðupptökur“ nema þú veljir að kveikja á henni.
Þessi stilling gildir alls staðar þar sem þú hefur skráð þig inn á YouTube og virkjað raddleit, til dæmis í YouTube-forritinu í símanum, sjónvarpinu eða á YouTube-vefsvæðinu í vafra.
Svona eru hljóðupptökur notaðar
Google notar hljóð sem þessi stilling vistar til að þróa og bæta hljóðgreiningartækni sína og þær Google-þjónustur sem nota hana, til dæmis YouTube-raddleit.
Í sumum tilvikum eru vistuð hljóðdæmi greind af yfirlesurum sem hlusta á og skrifa þau upp ásamt skýringum til að bæta hljóðgreiningartækni, til dæmis þegar einhver talar í háværu umhverfi eða á tilteknu tungumáli. Við gætum persónuverndar þinnar í þessu ferli, til dæmis með því að aftengja hljóðið frá reikningnum þínum þegar yfirlesarar okkar greina það
Þetta ferli hjálpar þjónustum að skilja betur hvað fólk segir við þær. Google bætti til dæmis sjálfvirka raddgreiningu fyrir tungumál sem höfðu lítið af gögnum með því að þjálfa stakt líkan með uppskrifuðum hljóðum tungumála sem höfðu nóg af gögnum, og gat þannig boðið upp á raddgreiningu í rauntíma á mörgum tungumálum.
Þegar kveikt er á hljóðupptökustillingu
Þegar kveikt er á hljóðupptökustillingu YouTube vistar Google hljóðupptökur á Google-reikningnum þínum með YouTube-ferlinum þegar þú virkjar raddleit í YouTube.
Hljóðupptaka kann að vera vistuð ef tækið greinir virkjun ranglega. Við vinnum stöðugt að því að bæta kerfið okkar þannig að það virkist síður óvart.
Ef þú notar tækið án nettengingar getur hugsast að hljóðið verði vistað á reikningnum þínum þegar þú tengist netinu á ný.
Þegar slökkt er á hljóðupptökustillingu
Ef þú hættir að vista mun Google ekki lengur vista hljóðupptökur á Google reikningnum með YouTube ferlinum þínum þegar þú kveikir á raddleit í YouTube. Google heldur áfram að vinna úr hljóði frá þér og svara þér þegar þú talar við þjónustu Google.
Þessi stilling hefur ekki áhrif á hljóðupptökur sem vistaðar hafa verið í og er stjórnað af öðrum Google-þjónustum á borð við Google-leit og Hjálparann sem þú getur einnig notað við raddleit að YouTube-vídeóum. Þú getur stjórnað því hvort hljóðupptökur úr Google-leit, Hjálpara og Kortum eru vistaðar með vef- og forritavirkninni þinni á activity.google.com.
Önnur ferli tengd vélrænu námi, sem ekki stjórnast af þessari stillingu, kunna að vera notuð til að bæta hljóðgreiningartækni með samtengdu námi eða tímabundnu námi.
- Þegar kveikt er á stillingunni „Bæta Gboard“ kann Gboard að vista og vinna úr hljóði í tækinu þínu með samtengdu námi til að bæta raddgreiningu fyrir alla, án þess að þurfa að senda það sem þú segir á netþjóna Google.
- Google kann að vinna úr og greina hljóð frá þér í rauntíma til að bæta hljóðgreiningartækni sína með því að nota tímabundið nám sem krefst þess ekki að hljóð sé vistað með YouTube-ferlinum þínum. Nánar á yt.be/speechlearningmodels
Svona er hægt að stjórna hljóðupptökum
Nokkrir valkostir eru í boði til að stjórna hljóðupptökum sem eru vistaðar með YouTube-ferlinum þínum, á activity.google.com, til dæmis:
- kveikja og slökkva á hljóðupptökustillingunni í stillingum YouTube ferilsins hvenær sem er
- hlusta á hljóð
- velja sjálfvirka eyðingu eða eyða hljóði handvirkt Google kann að eyða hljóði fyrr, ef ekki er lengur þörf á því fyrir þróun og úrbætur, til dæmis ef ekki þarf að nota jafn margar hljóðupptökur fyrir sum tungumál þegar fram í sækir
- sækja hljóðgögn á takeout.google.com
Á policies.google.com má finna upplýsingar um önnur gögn sem Google vistar, hvers vegna þau eru vistuð og hvernig gögn eru notuð til að bæta þjónustur okkar, þ.m.t. hvernig tæknin er notuð til að vernda upplýsingar og hvernig stýringar hjálpa þér að hafa umsjón með persónuvernd þinni í þjónustum okkar.