Okkur hjá Google er mikið í mun að þú fáir gagnsæi, val og stjórn á gögnunum þínum, þar á meðal því hvernig þau eru notuð í tengslum við auglýsingar.
Við gefum notendum sem eru með iPhone, iPad og Apple TV möguleika á að velja sérsniðnar og þar með gagnlegri auglýsingar á YouTube. Í samræmi við reglur Apple um gagnsæi í rakningu forrita (ATT) mun beiðni um að veita heimild birtast í YouTube-forritinu þínu. Val þitt hefur áhrif á alla sem nota það tæki.
Hvernig þú kveikir og slekkur á heimild
Þegar þú opnar YouTube-forritið gætirðu fengið beiðni um að veita heimild. Þú velur hvort þú vilt gefa YouTube leyfi eða ekki:
- Leyfa: Ef þú kveikir á þessari stillingu verður virkni úr þessu forriti tengd við virkni úr forritum og vefsvæðum sem ekki eru á vegum Google í því skyni að sérsníða auglýsingar og framkvæma auglýsingamælingar. Valið mun gilda fyrir alla notendur YouTube-forritsins á því tæki sem kveikt er á stillingunni fyrir.
- Biðja forritið að rekja ekki: Ef þú kveikir ekki á þessari stillingu verður virkni úr forritinu ekki lengur tengd við virkni úr forritum og vefsvæðum sem ekki eru á vegum Google í því skyni að sérsníða auglýsingar og framkvæma auglýsingamælingar. Þá gætirðu fengið auglýsingar í forritinu sem ekki eru sérsniðnar fyrir þig og þar með ekki eins gagnlegar. Meira verður líka um endurtekningar.
Stillingin hefur engin áhrif á tengingu á virkni annarra forrita og vefsvæða Google við forrit og vefsvæði sem ekki eru á vegum Google. Stillingin hefur heldur engin áhrif á notkun á virkni úr iOS-forriti YouTube, iPadOS eða tvOS eða öðrum forritum og vefsvæðum Google í því skyni að sérsníða auglýsingar, eftir því hvað þú hefur valið fyrir sérsniðnar auglýsingar á Google.
Beiðnin er ekki birt öllum notendum. Til dæmis er beiðnin ekki birt YouTube Premium-notendum og notendum með undirreikninga á YouTube.
Þú getur breytt stillingunni hvenær sem er með því að fara í stillingar tækisins þíns fyrir YouTube-forritið.