Þú getur bætt fornöfnunum þínum við rásina þína svo þau séu birt á síðu rásarinnar. Þú getur valið hvort þú vilt að allir sjái fornöfnin þín eða bara áskrifendur þínir.
Fornöfn eru mikilvægur hluti af sjálfsmynd og -tjáningu. Í sumum lögsagnarumdæmum gilda lög sem tengjast kyntjáningu. Hafðu þín staðbundnu lög í huga þegar þú velur opinbera birtingu á YouTube.
Ef fornöfn eru ekki tiltæk á rásarsíðunni þinni þá erum við að vinna að því að gera þennan eiginleika tiltækan í fleiri löndum/svæðum og tungumálum.
Athugaðu: Fornafnaeiginleikinn er ekki í boð fyrir vinnusvæðareikninga eða reikninga undir eftirliti.
Til að bæta við eða breyta fornöfnunum þínum:
YouTube Android-forritið
- Ýttu á prófílmyndina þína Rásin þín.
- Undir lýsingu rásarinnar skaltu ýta á Breyta .
- Við hliðina á Fornöfn skaltu ýta á Breyta Bæta við fornafni .
- Bættu við fornöfnunum þínum og veldu þau sem passa. Þú getur bætt við allt að fjórum fornöfnum.
- Þú getur breytt valinu með því að ýta á við hliðina á fornafni til að fjarlægja það.
- Veldu hver geta séð fornöfnin þín:
- Öll á YouTube, EÐA
- Bara áskrifendur mínir
- Ýttu á Vista.