Yfirliti yfir YouTube-höfundasamfélagið

YouTube-höfundasamfélagið veitir höfundum tækifæri til að hittast, eiga samskipti við og læra af öðrum höfundum og skapa þannig tengslanet á YouTube. Höfundar fá líka aðstoð frá samstarfsráðgjafa YouTube-samfélagsins sem leiðbeinir þeim um YouTube.

Hvað er samstarfsráðgjafi YouTube-samfélagsins?

Markmið samstarfsráðgjafa YouTube-samfélagsins er að skapa samfélag sem fræðir, uppörvar og eflir reynslu höfundarins. Það gæti auðveldað aðgang að tækifærum sem efla tengsl höfunda, leiðbeina höfundum á YouTube og hvetja þá til að fullnýta YouTube-upplifunina.

Hér eru nokkrar af þeim leiðum sem samstarfsráðgjafar geta hjálpað höfundum að ná árangri á YouTube:

  • Aðgangur að vaxandi neti hvetjandi höfunda
  • Reglulegar uppfærslur varðandi góð vinnubrögð, nýja eiginleika og tillögur að umfjöllunarefnum
  • Sérstök boð á höfunda-/iðnaðarviðburði og vinnustofur
  • Aðgang á undan öðrum að nýjustu vörueiginleikunum, gangsetningum og fræðslu um nýja eiginleika
  • Tækifæri til að deila ábendingum beint með vöruteymunum

Algengar spurningar varðandi YouTube-höfundasamfélagið

Hverjir geta tekið þátt í höfundasamfélagi YouTube?

Eingöngu er hægt að fá aðgang að YouTube-höfundasamfélaginu gegn boði svo þú skalt vera vakandi fyrir upplýsingum frá okkur um skráningu í tölvupósti eða YouTube Studio. Fjöldi plássa í höfundasamfélagi YouTube er takmarkaður og samstarfsráðgjafar samfélagsins hafa samband við höfunda sem geta fengið aðgang með upplýsingum um næstu skref.

YouTube-höfundasamfélagið einbeitir sér að virkum höfundum og er í boði fyrir rásir sem fylgja reglum netsamfélags okkar. Ef höfundar uppfylla ekki lengur þátttökuskilyrðin eða brjóta gegn reglum netsamfélagsins gætu þeir misst aðgang að YouTube-höfundasamfélaginu.

Yfirleitt vinnum við með rásum sem:

  • Eru staðsettar í eða einbeita sér að löndum/svæðum þar sem samstarfsráðgjafar samfélagsins eru tiltækir
  • Birta reglulega efni á YouTube
  • Hafa möguleika á að vaxa
  • Eru ekki með punkta vegna brota gegn reglum netsamfélagsins
  • Eru ekki með fleiri en einn punkt vegna óleysts höfundarréttarbrots
  • Fylgja leiðbeiningum okkar um auglýsingavænt efni
  • Bera virðingu fyrir öllum höfundum sem taka þátt sem og fyrir samstarfsráðgjöfum samfélagsins við þátttöku í samfélagsviðburðum, vinnustofum og svipuðum verkefnum

Hvaða lönd eða landsvæði geta tekið þátt í höfundasamfélagi YouTube?

  • Albanía
  • Argentína
  • Ástralía
  • Austurríki
  • Barein
  • Bangladess
  • Belgía
  • Bólivía
  • Bosnía og Hersegóvína
  • Brasilía
  • Búlgaría
  • Kanada
  • Chile
  • Kólumbía
  • Kosta Ríka
  • Króatía
  • Kúba
  • Tékkland
  • Danmörk
  • Dóminíska lýðveldið
  • Ekvador
  • Egyptaland
  • El Salvador
  • Eistland
  • Finnland
  • Frakkland
  • Þýskaland
  • Gana
  • Gvatemala
  • Hondúras
  • Ungverjaland
  • Indland
  • Indónesía
  • Írak
  • Írland
  • Japan
  • Jórdanía
  • Kenía
  • Kúveit
  • Lettland
  • Líbanon
  • Líbía
  • Litháen
  • Lúxemborg
  • Makedónía
  • Malasía
  • Mexíkó
  • Moldóva
  • Svartfjallaland
  • Marokkó
  • Holland
  • Nýja-Sjáland
  • Níkaragva
  • Nígería
  • Noregur
  • Óman
  • Pakistan
  • Panama
  • Paragvæ
  • Perú
  • Filippseyjar
  • Pólland
  • Púertó Ríkó
  • Katar
  • Rúmenía
  • Sádi-Arabía
  • Serbía
  • Singapúr
  • Slóvenía
  • Suður-Afríka
  • Suður-Kórea
  • Spánn
  • Svíþjóð
  • Sviss
  • Taíland
  • Túnis
  • Tyrkland
  • Sameinuðu arabísku furstadæmin
  • Bretland
  • Bandaríkin
  • Úrúgvæ
  • Venesúela
  • Víetnam

Þarf að greiða fyrir aðstoð frá samstarfsráðgjafa YouTube-samfélagsins?

Nei, þjónusta samstarfsráðgjafa samfélagsins er þér að kostnaðarlausu.

Er munur á samstarfsráðgjafa og samstarfsráðgjafa YouTube-samfélagsins?

YouTube-höfundasamfélagið sem rekið er af samstarfsráðgjafa samfélagsins og samstarfsráðgjafaþjónusta YouTube eru tvær aðskildar þjónustur með mismunandi þátttökuskilyrðum og þjónustuframboði.

  • Samstarfsráðgjafi samfélagsins: YouTube-höfundasamfélagið er stórt samfélag þar sem höfundar geta tengst öðrum höfundum og kynnt sér YouTube-vörur.
  • Samstarfsráðgjafi: Samstarfsráðgjafaþjónustan styður einstaka höfunda með persónulegri þjónustu YouTube-sérfræðinga.

Ég komst að því að ég er ekki gjaldgeng(ur). Hvað á ég að gera?

Hafðu engar áhyggjur! Það er samt sem áður fjöldi tilfanga sem þú getur nýtt þér til að stækka rásina þína:

Hvernig get ég verið viss um að tölvupósturinn sem ég fæ sé raunverulega frá YouTube?

Við vitum að höfundar fá marga tölvupósta varðandi rásina sína. Svona geturðu gengið úr skugga um að tölvupósturinn sé raunverulega frá starfsfólki YouTube:

  • Kannaðu tölvupóstslénið: Gakktu úr skugga um að tölvupósturinn sé frá @google.com, @youtube.com, eða @partnerships.withyoutube.com. Tölvupóstar frá öðrum lénum sem segjast vera frá YouTube eða Google eru líklega falskir.
  • Skoðaðu tenglana: Passaðu að vefslóðir tengla eða eyðublaða í tölvupóstinum endi á youtube.com, withgoogle.com, withyoutube.com, youtube.secure.force.com eða youtube.force.com.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
10131023560780959762
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
59
false
false
false
false