Áttu í vanda með að krefjast endurgreiðslu fyrir YouTube kaup þín? Skoðaðu þessi algengu vandamál til að hjálpa til við úrræðaleit og leysa úr þínum vandræðum.
Hvers vegna var endurgreiðslunni minni hafnað?
Endurgreiðslu gæti verið hafnað ef kaupin sem um ræðir falla ekki innan yfirlýstra reglna okkar um endurgreiðslu. Athugaðu að við bjóðum ekki upp á hlutaendurgreiðslu fyrir ársaðild eða endurgreiðslu á kvikmyndum og þáttum sem þegar hefur verið horft á. Við bjóðum heldur ekki upp á endurgreiðslu á sumum vörum, til dæmis Súperspjalli.
YouTube-kaup gegnum App Store þurfa að fá leyfi frá Apple og heyra undir endurgreiðslureglur þess fyrirtækis.
YouTube getur ekki heimilað endurgreiðslur fyrir kaup sem gerð eru með Apple-tæki eða í gegnum Apple-innheimtu. Hafðu samband við þjónustudeild Apple til að biðja um endurgreiðslu.
Ef þú hefur skoðað endurgreiðslureglur okkar og heldur að þú eigir rétt á endurgreiðslu skaltu hafa samband við þjónustuteymið okkar.
Ég fæ villumeldingu þegar ég reyni að krefjast endurgreiðslu
YouTube-kaup gegnum App Store þurfa að fá leyfi frá Apple og heyra undir endurgreiðslureglur þess fyrirtækis.
YouTube getur ekki heimilað endurgreiðslur fyrir kaup sem gerð eru með Apple-tæki eða í gegnum Apple-innheimtu. Hafðu samband við þjónustudeild Apple til að biðja um endurgreiðslu.
Ef þú notar tölvu eða Android-tæki og átt í vandræðum með að krefjast endurgreiðslu skaltu athuga endurgreiðslureglur okkar. Þú þarft að vera gjaldgeng(ur) til endurgreiðslu.
Ef þú hefur skoðað endurgreiðslureglur okkar og heldur að þú eigir rétt á endurgreiðslu skaltu hafa samband við þjónustuteymið okkar.
Hvers vegna get ég ekki farið fram á endurgreiðslu í Apple-tækinu mínu?
YouTube-kaup gegnum App Store þurfa að fá leyfi frá Apple og heyra undir endurgreiðslureglur þess fyrirtækis.
YouTube getur ekki heimilað endurgreiðslur fyrir kaup sem gerð eru með Apple-tæki eða í gegnum Apple-innheimtu. Hafðu samband við þjónustudeild Apple til að biðja um endurgreiðslu.
Endurgreiðslum frá YouTube er skilað á greiðslumátann sem notaður var til kaupanna. Gengið er frá flestum endurgreiðslum innan fimm virkra daga með örfáum undantekningum:
|
Greiðslumáti |
Áætlaður endurgreiðslutími |
|
Greiðsla með símreikningi (fyrirframgreitt / greitt samkvæmt notkun) |
1–30 virkir dagar Símafyrirtækið þitt hefur áhrif á vinnslutíma og stundum er hann lengri. |
|
Greiðsla með símreikningi (eftirágreiðsla / samningur) |
1–2 mánaðaryfirlit Símafyrirtækið þitt hefur áhrif á vinnslutíma en yfirleitt er leyst úr endurgreiðslum innan tveggja mánaðarreikningsyfirlita. Ef þær taka lengri tíma skaltu hafa samband við símafyrirtækið til að vita stöðuna. |
|
Netbanki |
4–10 virkir dagar Vinnslutími fer eftir bankanum þínum en hann er yfirleitt 10 virkir dagar eða færri. |
|
iTunes |
Ef þú keyptir YouTube Premium með iTunes skaltu hafa samband við Apple-þjónustu til að athuga endurgreiðslustöðu þína. |
Ef endurgreiðslan tekur lengri tíma en búist var við skaltu athuga stöðu endurgreiðslunnar á Google Payments-reikningnum þínum.
- Ef staðan er „Endurgreitt“ sérðu innborgun á greiðslumátanum.
- Ef staðan er „Hætt við“ var pöntunin ekki skuldfærð og þú munt ekki sjá útborgun á greiðslumátanum þínum.
Hvernig tilkynni ég óheimil kaup?
Hvernig fer ég fram á endurgreiðslu fyrir Súperspjall / Super Stickers / SúperTakk / fjárframlag?
Súperspjall, Super Stickers, SúperTakk og fjárframlög eru greiðslur sem inntar eru af hendi af frjálsum vilja og ekki er hægt að endurgreiða þær.
Ef þú vilt tilkynna óheimil kaup á Google-reikningnum þínum getur þú gert það hér.