Upplýsingar um grunnatriðin um persónuvernd í YouTube-forritum

Öryggi þitt á netinu skiptir okkur öllu máli – við höfum skuldbundið okkur til að vera gagnsæ um gögnin sem við notum og gefa þér val og stjórn á þeim.

Gögnin sem þú veitir Google og YouTube hjálpa okkur að bæta upplifunina þína þegar þú notar þjónustur okkar. Þú getur stjórnað persónuverndarstillingum þínum á YouTube með því að fara á Gögnin þín á YouTube eða Google-reikninginn þinn.

Hvernig YouTube getur notað gögn sem tengjast reikningnum þínum

YouTube notar gögnin þín til að bæta upplifun þína, til dæmis með því að minna þig á það sem þú hefur horft á og sýna þér tillögur og leitarniðurstöður sem eru sniðnari að þér. Virknin og upplýsingarnar þínar geta einnig verið notaðar til að sérsníða auglýsingar á YouTube og öðrum Google-þjónustum. Þú getur stjórnað eða slökkt á virknigögnum í Gögnin þín á YouTube.

Hvernig YouTube getur notað samantekin gögn

Til að bæta stöðugt þjónustur okkar notum við nafnlaus, samantekin YouTube-gögn til að bæta upplifunina fyrir alla notendur. Til dæmis notum við greiningu til að skilja ástand YouTube-forritsins, lagfæra villur, auka hraða og bæta frammistöðu.

Hvernig YouTube hjálpar þér að stjórna persónuvernd og öryggi þínu

Við erum stöðugt að vinna að því að þú getir haft stjórn á persónuvernd og öryggi þínu á YouTube – hvort sem það er með því að hjálpa þér að stjórna stillingunum þínum með forvirkum verkfærum eða gera þær stillingar auðveldari í notkun í vörum okkar. Til dæmis bjóðum við upp á verkfæri til að lágmarka gögn, eins og sjálfvirka eyðingu, sem gerir þér kleift að láta YouTube eyða gögnunum þínum sjálfvirkt eftir vissan tíma. Þú getur stjórnað virknigögnum í Gögnin þín á YouTube.

Hvernig YouTube getur notað leitar- og áhorfsferil þinn og hvernig þú getur stjórnað ferlum

YouTube notar leitar- og áhorfsferil til að bæta upplifun þína, til dæmis með því að auðvelda þér að finna vídeó sem þú hefur nýlega horft á til að bæta tillögurnar sem þú færð. Einnig er hægt að nota leitar- og áhorfsferil til að sýna þér viðeigandi og gagnlegar auglýsingar. Þú getur skoðað eða eytt gögnum úr leitar- og áhorfsferlinum á Gögnin þín á YouTube til að tillögur og auglýsingar hæfi þér betur. Ef þú ert ekki með viðeigandi eða langan fyrri áhorfsferil og hefur gefið til kynna að þú viljir ekki fá tillögur í framtíðinni byggt á þeim ferli verða YouTube-eiginleikar á borð við tillögur á heimasíðu YouTube fjarlægðir.
Farðu á Gögnin þín á YouTube til að stjórna hvaða aðgerðagögn eru vistuð í Google-reikningnum þínum. Þú getur líka skoðað eða eytt virkni þinni á YouTube.

Hvernig YouTube notar staðsetningargögnin þín

YouTube áætlar núverandi staðsetningu þína með því að nota staðsetningu tækisins þíns, vistað heimilisfang vinnu eða heimilis á Google-reikningnum þínum og IP-töluna þína til að upplifunin hafi sem mest gildi. Nánar um skilning á og stjórnun staðsetningar þinnar þegar þú leitar á YouTube.

Þú getur fengið meiri upplýsingar um hvernig staðsetningargögn eru notuð á Google, þar á meðal til að birta þér gagnlegri auglýsingar á YouTube. Skoðaðu líka Gögnin þín á YouTube til að kynna þér hvernig YouTube notar staðsetningargögnin þín.

Stjórnaðu því hvaða gögn og virkni eru notuð til að sérsníða auglýsingar

Þegar þú notar Google-forrit getur þú stjórnað því hvaða gögn og virkni má nota til að sérsníða auglýsingar eða þú getur slökkt alfarið á sérsniðnum auglýsingum. Við auðveldum þér að stjórna þeim gögnum sem notuð eru til að sérsníða auglýsingar í Auglýsingastillingar. Þessi gögn innihalda það sem við áætlum um áhugamál þín út frá virkni og samskiptum þínum við aðra auglýsendur sem eru í samstarfi við okkur til að sýna auglýsingar og upplýsingar sem þú bætir við Google-reikninginn þinn.

Þegar þú skráir þig inn á Google-reikninginn þinn getur þú stjórnað því hvernig auglýsingarnar þínar eru sérsniðnar eða slökkt alfarið á sérsniðnum auglýsingum í Auglýsingastillingar.

Til að fá frekari upplýsingar um Google Ads og gögn skaltu fara í öryggismiðstöðina okkar.

Hvernig YouTube getur notað persónuupplýsingarnar þínar

Persónuupplýsingarnar þínar taka til upplýsinga eins og nafnsins og myndarinnar þinnar. Þú getur valið hvaða persónuupplýsingar þú sýnir öðrum í þjónustum Google með því að stjórna persónuupplýsingunum þínum á Google-reikningnum þínum. Sumar auglýsingar kunna að innihalda eyðublöð fyrir þig til að veita viðbótarupplýsingar, eins og netfang og símanúmer, en þau eru valfrjáls og ekki nauðsynleg til að þú getir haldið áfram að nota YouTube.

YouTube selur ekki persónuupplýsingarnar þínar

Við seljum engum persónuupplýsingarnar þínar. Við notum upplýsingar sem við söfnum til að sérsníða þjónustur okkar fyrir þig, til dæmis með því að bjóða þér upp á tillögur, sérsniðið efni og sérsniðnar leitarniðurstöður og birta þér viðeigandi auglýsingar. Þrátt fyrir að þessar auglýsingar séu notaðar til að fjármagna þjónustur okkar og gera þær aðgengilegar fyrir alla endurgjaldslaust eru persónuupplýsingar þínar ekki til sölu.

Hvernig YouTube getur notað efni, til dæmis vídeó og ljósmyndir, sem þú velur að hlaða upp

Einungis efni sem þú ákveður að hlaða upp er geymt af YouTube og tengt YouTube-rásinni þinni. Hverjir sjá efnið ræðst af persónuverndarstillingum vídeósins sem þú velur. Háð persónuverndarstillingum vídeósins getur efni sem þú hefur hlaðið upp verið gert sýnilegt eða mælt með því fyrir áhorfendur. Nánar um hvernig þú getur breytt persónuverndarstillingum vídeós hér. Frekari upplýsingar um hvernig þú getur stjórnað og breytt efni með YouTube Studio í tölvu eða snjalltæki má finna hér.

Það sem er gert við efnið þitt og tengd gögn eftir að þú eyðir vídeói

Ef þú velur að eyða vídeói af YouTube verður því eytt fyrir fullt og allt. Ekki verður hægt að endurheimta það síðar og ekki verður lengur hægt að leita að vídeóinu á YouTube. Gögn sem tengjast vídeóinu, til dæmis áhorfstími, verða áfram hluti af samantektarskýrslum. Frekari upplýsingar um hvernig þú getur stjórnað og breytt efni með YouTube Studio í tölvu eða snjalltæki má finna hér. Nánari upplýsingar um hvernig þú getur eytt og skipt út vídeóum má finna hér.

Það sem gerist þegar þú eyðir YouTube-rásinni þinni

Þú getur hvenær sem er valið að loka eða eyða YouTube-rásinni þinni. Sé rás lokað eða endanlega eytt eyðist efnið þitt varanlega, þar á meðal öll vídeó, ummæli, skilaboð og spilunarlistar. Þá getur þú ekki lengur skrifað ummæli eða birt efni.

Skoðaðu persónuverndarstefnu okkar til að fá frekari upplýsingar um hvernig við notum gögn á YouTube og alls staðar á Google.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
7655610861363426558
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
59
false
false
false
false