Afritaðar myndir og vídeó sem þú eyðir verða í ruslinu í 60 daga áður en þeim er
eytt varanlega. Ekki er hægt að endurheimta myndir og vídeó sem hefur verið eytt varanlega. Kynntu þér hvernig þú kveikir á öryggisafritun.
Áður en þú eyðir myndum og vídeóum
Kynntu þér hvaðan myndum og vídeóum er eytt og hvaðan ekkiAtriðum sem er eytt úr Google-myndum er einnig eytt úr:
- Android- og iOS-tækjum þar sem forrit Google-mynda er uppsett og kveikt er á öryggisafritun.
- Albúmum Google-mynda
- Sameiginlegum albúmum og samtölum þar sem þú hefur bætt efninu við
- Sumum hápunktavídeóum Google-mynda. Kynntu þér myndir sem er eytt í hápunktavídeóum.
Atriði sem þú eyðir eru ekki fjarlægð sjálfkrafa úr:
- Blogger
- Drive
- Gmail
- Staðbundinni geymslu þegar skrár eru sóttar í iOS-tæki og úr sumum tækjum sem keyra Android 11 eða nýrri útgáfu.
- YouTube
Before you get started
Download and install the Google Photos app.
Eyða myndum og vídeóum
Hægt er að eyða allt að 1500 myndum og vídeóum úr safni Google-mynda eða úr myndavélarmöppu í senn.
Mikilvægt: Þegar myndum og vídeóum er eytt úr forriti Google-mynda er sömu atriðum eytt úr tækinu þínu. Ef atriðin hafa verið afrituð er sama efni eytt úr öllum tækjum þar sem kveikt er á öryggisafritun. Kynntu þér hvernig hægt er að fjarlægja afritaðar myndir og vídeó úr Google-myndum án þess að fjarlægja efnið úr tækinu þínu.
- Opnaðu forrit Google-mynda í iPhone eða iPad.
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Haltu inni myndinni eða vídeóinu sem þú vilt setja í ruslið. Hægt er að velja margar myndir og vídeó.
- Ýttu á „Eyða“ efst.
Kynntu þér hvað verður um myndir og vídeó sem þú eyðir
- Ef þú eyðir mynd eða vídeói sem búið er að afrita yfir á Google-myndir verður efnið í ruslinu í 60 daga.
- Ef þú eyðir mynd eða vídeói úr iPhone eða iPad án þess að efnið sé afritað yfir á Google-myndir verður efnið í ruslinu í 30 daga og verður svo eytt varanlega. Kynntu þér hvernig þú kveikir á öryggisafritun.
Ábending: Myndir og vídeó sem er eytt eru hugsanlega áfram til taks á lausu minniskorti. Notaðu myndasafnsforrit tækisins til að eyða efninu varanlega.
Eyða myndum og vídeóum varanlega
- Opnaðu forrit Google-mynda í iPhone eða iPad.
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Neðst skaltu ýta á Safn Rusl Velja.
- Veldu mynd eða vídeó sem þú vilt eyða varanlega.
- Smelltu á Velja efst.
- Ýttu á Eyða Eyða.
Ábending: Atriði sem búið er að eyða varanlega úr Google-myndum kunna að vera áfram til staðar í iPhone eða iPad í möppu sem geymir atriði sem var eytt nýlega í Apple Photos.
Fjarlægja atriði úr tækinu
- Opnaðu forrit Google-mynda í iPhone eða iPad.
- Skráðu þig inn á Google-reikninginn þinn.
- Veldu myndina eða vídeóið sem þú vilt eyða úr iPhone eða iPad.
- Efst skaltu ýta á Meira Eyða úr tæki.
Lærðu að losa um pláss í tækinu.
Fjarlægja afritaðar myndir og vídeó úr Google-myndum en ekki úr tækinu
- Slökktu á öryggisafritun í forriti Google-mynda í iPhone eða iPad.
- Slökktu á afritun í öllum tækjum þar sem þú vilt varðveita myndirnar eða vídeóin.
- Opnaðu photos.google.com/login í tölvu eða snjalltækjavafra.
- Eyddu völdum afritum mynda og vídeóa úr Google-myndum.
- Í iPhone eða iPad skaltu bíða í nokkrar mínútur og ganga úr skugga um að WiFi-tenging sé til staðar.
- Lokaðu og opnaðu forritið aftur.
- Myndir sem var eytt kunna að birtast áfram á yfirliti Mynda. Þær myndir eru aðeins staðbundin afrit. Til að skoða afritunarstöðu myndar skaltu ýta á myndina Meira . Flettu niður að „Upplýsingar“.
Til að tryggja að myndin eða vídeóið verði ekki afritað aftur yfir á Google-myndir og að staðbundnu afriti verði ekki eytt skaltu hafa slökkt á öryggisafritun.
Ábendingar:
- Ef þú hefur slökkt á öryggisafritun nýtirðu ekki kosti öryggisafritunar. Nánar um kosti öryggisafritunar.
- Ef þú vilt vista myndir og vídeó yfir á Google-reikninginn aftur geturðu kveikt á öryggisafritun. Kynntu þér hvernig þú kveikir á öryggisafritun.
- Ef þú kveikir á öryggisafritun getur eftirfarandi stundum gerst:
- Mynd eða vídeó sem var eytt kann að verða afritað á ný þegar kveikt er aftur á öryggisafritun.
- Afriti myndar eða vídeós í tæki kann að verða eytt þegar kveikt er aftur á öryggisafritun.