Ef þú deilir staðsetningu þinni með einhverjum munu Google-kort endurnýja staðsetningu þína á kortinu reglulega. Þetta tryggir að sá sem þú deilir með fái nákvæma og uppfærða mynd af því hvar þú ert.
Stundum sérðu skilaboð efst á skjánum eða á tilkynningalistanum þínum sem láta þig vita að staðsetningin þín hafi verið uppfærð.
Dragðu úr því hversu oft þú sérð þessa tilkynningu
Það eru leiðir til að tryggja að staðsetningin þín uppfærist í bakgrunni. Þetta mun valda því að tilkynningin birtist sjaldnar.
Athugaðu: Nákvæm skref kunna að vera breytileg eftir tækjum.
Í Android Pie: Minnkaðu tilkynninguna
Þú getur minnkað þessa tilkynningu til að gera hana minna áberandi. Næst þegar þú sérð tilkynninguna skaltu halda henni inni og velja Lágmarka.
Í Android Oreo: Minnkaðu mikilvægi tilkynninga
Þú getur lækkað forgang tilkynninga til að draga úr truflunum.
- Haltu inni forriti Google-korta
á heimaskjánum eða í forritavalmyndinni. Ýttu síðan á Upplýsingar.
- Ýttu á Tilkynningar.
- Flettu niður í „Fólk og staðir“ og ýttu á Uppfærslur á staðsetningu sem þú deilir.
- Veldu Lítið mikilvægi (Engin hljóð- eða myndtruflun).
Leita að villum
- Opnaðu forrit Google-korta
í tækinu þínu.
- Ýttu á prófílmyndina þína eða upphafsstafinn
Staðsetningardeiling.
Athugaðu: Ef vandamál koma upp birtist viðvörun efst á skjánum.
Slökkva á þessari tilkynningu
Mikilvægt: Ef þú slekkur á þessum tilkynningum verður staðsetningin sem þú deilir með öðrum hugsanlega ekki endurnýjuð og er líkleg til að verða ónákvæm.
Athugaðu: Nákvæm skref kunna að vera breytileg eftir tækjum.
- Opnaðu forrit Google-korta
í tækinu þínu.
- Ýttu á prófílmyndina eða upphafsstafinn þinn
Stillingar
.
- Ýttu á „Tilkynningar“
Google.
- Flettu niður að „Staðsetningardeiling Google (þú)“ og slökktu á henni.
Kynntu þér hvernig þú kveikir eða slekkur á tilkynningum Google-korta.