Google Maps Go er foruppsett í tækjum með Android Oreo (Go-útgáfu). Einnig er hægt að sækja forritið í Play Store. Google Maps Go er ekki það sama og forrit Google-korta. Það er hannað til að virka vel í tækjum með takmarkað minni.
Það sem þú getur ekki gert í Google Maps Go
Sumir eiginleikar Korta eru ekki studdir í Google Maps Go. Þegar þú notar Google Maps Go geturðu ekki:
- Deilt staðsetningu í rauntíma
- Sótt svæði og fengið leiðsögn án nettengingar
- Tilkynnt vandamál sem tengjast gögnum
- Breytt upplýsingum um stað
- Mælt vegalengd á milli staða
- Bætt sérmerkjum við staði
Sæktu Google Maps Go
Sæktu Google Maps Go í Play Store til að nota forritið í símanum. Sæktu leiðsagnarforritið fyrir Google Maps Go í Google Play Store til að fá stöðuga leiðsögn.
Fáðu upplýsingar um stað
Leitaðu að stað
Leitaðu að stað eða tegund af stað eða flettu upp nýlegum leitarfyrirspurnum. Leitarniðurstöðurnar þínar birtast á kortinu sem rauðir punktar eða rauðir smáprjónar. Smáprjónarnir sýna vinsælar niðurstöður ásamt táknum sem lýsa staðnum.
- Opnaðu Google Maps Go
.
- Ýttu á leitarreitinn efst og sláðu inn heimilisfang eða heiti staðar. Þú getur einnig leitað eftir flokkum, t.d. „bensínstöðvar“ eða „veitingastaðir“.
- Ýttu á „Hreinsa“
til að fjarlægja leitarniðurstöður.
Fáðu nánari upplýsingar um stað
Til að kynna þér stað betur:
- Leitaðu að staðsetningu eða ýttu á tákn staðarins á kortinu.
- Ýttu á heiti staðarins neðst.
Þá birtast upplýsingar um staðinn. Meðal annars upplýsingar á borð við heimilisfang, afgreiðslutíma, símanúmer og einkunnir eða umsagnir.
Fáðu leiðarlýsingu
Þú finnur áætlaðan ferðatíma og leiðarlýsingu á staði sem þú ætlar hugsanlega að heimsækja næst.
- Leitaðu að stöðunum sem þú vilt heimsækja. Vertu viss um að stafsetja þá rétt.
- Ýttu á „Leiðarlýsing“
.
- Veldu eitt af eftirfarandi:
- Akstur:
- Almenningssamgöngur:
- Gangandi:
- Hjólandi:
- Akstur:
- Ýttu á „Valkostir“
fyrir neðan valkosti leiðarlýsingar til að forðast ferjur, vegatolla og hraðbrautir.
- Ýttu á gráu leiðirnar sem birtast til að sjá aðrar leiðir.
- Ýttu á Leiðsögn til að fá raddleiðsögn. Notaðu hljóðstyrkshnappana á tækinu til að stjórna hljóðstyrk raddleiðsagnarinnar.
Ábending: Til að nota leiðsögn þarftu að vera með leiðsagnarforritið fyrir Google Maps Go sem er hugsanlega ekki í boði allsstaðar.
Sjá leiðarlýsingu fyrir létt bifhjól og mótorhjól
Mikilvægt: Þessi eiginleiki er ekki í boði alls staðar.
Til að fá leiðarlýsingu fyrir mótorhjól eða létt bifhjól skaltu skipta yfir í leiðarlýsingu fyrir mótorhjól. Google-kort vísa þér frá vegum sem mótorhjól eru ekki leyfð á. Leiðarlýsingar gætu innihaldið styttri leiðir eftir mjórri hliðarvegum.
- Leitaðu að áfangastaðnum eða ýttu á hann á kortinu.
- Neðst vinstra megin ýtirðu á „Leiðarlýsing“
.
- Ýttu á „Mótorhjól“
Byrja.
Ábendingar:
- Áður en þú leggur af stað geturðu skoðað næstu beygjur vandlega. Ýttu á hvítu hringina á leiðinni.
- Ýttu á kennileiti til að fá frekari upplýsingar eða bæta stoppi við (ef þú valdir þitt eigið farartæki).
Fáðu leiðarlýsingu fyrir mismunandi tímasetningar
Þegar þú biður um leiðarlýsingu skaltu velja hvenær þú leggur af stað eða vilt koma á áfangastað.
- Ýttu á „Leiðarlýsing“
.
- Veldu áfangastað.
- Ýttu á „Leggja af stað núna“
fyrir neðan valkosti leiðarlýsingar efst.
- Veldu tímasetningu og fylgdu leiðbeiningunum.
Ábending: Leiðarlýsing fyrir almenningssamgöngur er ekki í boði fyrir allar borgir í Google Maps Go. Sjáðu hvaða borgir eru í boði.
Sjáðu hvað er í nágrenninu
Hér er fleira sem þú getur gert í Google Maps Go.
Ábending: Sumir eiginleikar eru ekki í boði á öllum svæðum.
Kannaðu kortið
Ýttu á stað í símanum eða spjaldtölvunni til að fá upplýsingar um hann. Þú getur einnig haldið inni hvar sem er á kortinu til að fá nánari upplýsingar um staðsetninguna.
- Leitaðu að ákveðnu kennileiti eða heimilisfangi: Ýttu á „Leita“
efst.
- Skoðaðu þig um: Notaðu einn fingur til að ýta á kortið og draga skjáinn.
- Auktu eða minnkaðu aðdrátt: Færðu tvo fingur saman á skjánum.
- Sjáðu núverandi staðsetningu: Blár punktur gefur til kynna hvar þú ert. Ef þú sérð ekki bláan punkt skaltu fara neðst til hægri og smella á „Staðsetningin þín“
.
Þú getur séð upplýsingar um leiðir, umferð eða landslag. Þú getur einnig skoðað gervihnattamyndir.
Ýttu á „Valmynd“
og veldu valkost af listanum.
Þú getur skoðað nærmyndir af sumum stöðum í Google Maps Go. Athugaðu hvort myndirnar opnast í Götusýn .
Leystu vandamál eða sendu okkur ábendingu
Hvers vegna fæ ég tilkynningu frá Google Chrome?
Google Maps Go þarf Chrome til að virka í tækinu þínu. Ef þú ert skráð(ur) inn á Chrome ertu sjálfkrafa innskráð(ur) í Google Maps Go.
Hvað þýðir „Engin nettenging“?
Tækið þitt er ekki tengt við Wi-Fi eða gagnamerki. Prófaðu að tengjast aftur eða færa þig á stað þar sem þú nærð betri tengingu.
Hvers vegna birtist veffangastikan efst í forritinu?
Gakktu úr skugga um að þú hafir uppfært Google Chrome í nýjustu útgáfu. Opnaðu síðan Google Maps Go aftur.
Hvernig eyði ég leitarferlinum?
Opnaðu persónuupplýsinga- og persónuverndarsíðuna.
Sendu inn ábendingu
Þú getur greint okkur frá vandamálunum sem upp komu eða því sem þér líkar eða líkar ekki við Google Maps Go. Ýttu á „Valmynd“
Senda inn ábendingu.
Ábending: Notaðu forrit Google-korta til að tilkynna vandamál sem tengist gögnum.