Að svara spurningum

Þú getur svarað spurningum til að hjálpa okkur að uppfæra upplýsingar í Google-kortum. Spurningarnar byggjast á upplýsingum sem Google telur síður áreiðanlegar en eru mikilvægar öðrum notendum.

Þegar þú svarar spurningu verður svarið tengt við framlag annarra notenda, fyrirtækjaeigenda og aðrar heimildir.

Finndu upplýsingar úr svörum

Upplýsingar um staði sem fengnar eru úr svörum birtast á ýmsum stöðum, s.s.:

  • Á aðalsíðu fyrirtækis
  • Á flipanum „Um fyrirtæki“
  • Í leitarniðurstöðum á Google

Ábendingar:

  • Nafnið þitt og stök svör sem þú hefur veitt eru ekki birt ásamt þessum nýju upplýsingum.
  • Svörin þín verða hugsanlega einnig birt sem tölfræðiupplýsingar til að auðvelda notendum að skilja nýju upplýsingarnar.

Fáðu tilkynningar um staði sem þú hefur heimsótt

Kveiktu á tímalínu til að fá spurningar um staði sem þú hefur heimsótt. Þú getur skoðað eða breytt tímalínu Google-korta hvenær sem er.

Svaraðu spurningum í snjalltæki

  1. Opnaðu forrit Google-korta Kort í snjalltækinu þínu.
  2. Skráðu þig inn á reikninginn þinn.
  3. Ýttu á leitarreitinn efst.
  4. Sláðu inn heiti staðar sem þú hefur heimsótt.
    • Þú getur einnig ýtt á staðinn á kortinu.
  5. Ýttu á heiti eða heimilisfang staðarins neðst.
    • Tilkynningin „Þekkirðu þennan stað?“ birtist ef þú hefur heimsótt eða skrifað umsögn um stað.
  6. Ýttu á Þekkirðu þennan stað? til að svara spurningum.
    • Ýttu á „Loka“ Loka til að hunsa tilkynninguna.

Ábending: Þú þarft að vera með nýjustu útgáfu Google-korta til að geta svarað spurningum. Kynntu þér hvernig þú uppfærir Google-kort.

Eyddu svörunum þínum

  1. Opnaðu Google-kort í tölvunni þinni.
  2. Skráðu þig inn á reikninginn þinn.
  3. Smelltu á valmyndina efst til vinstri Valmynd og síðan Framlag þitt og síðan Svör.
  4. Smelltu á „Eyða“ við hliðina á svörunum sem þú vilt eyða.
  5. Smelltu á Eyða í sprettiglugganum til að eyða svarinu.
    • Smelltu á Hætta við eða „Loka“ Loka til að hætta við.

Ábending: Ekki er hægt að endurheimta svör sem hefur verið eytt.

Var þetta gagnlegt?

Hvernig getum við bætt þetta?
Leit
Hreinsa leit
Loka leit
Google forrit
Aðalvalmynd
14462941692561503339
true
Leita í hjálparmiðstöð
false
true
true
true
true
true
76697
false
false
false
false